Alvald ríkissaksóknara Gerður Berndsen skrifar 13. janúar 2011 06:00 Veit almenningur að réttarkerfið hefur komist upp með að brjóta eftirtalin lög þar sem ung stúlka var myrt 27.5.2000? Að það er enginn til að framfylgja þeim lögum? Að ríkissaksóknari er alvald? Að Alþingi er undirsáti hans? Að hann þarf hvorki að rökstyðja né skjalfesta ákvörðun um ákæru? Að ekki er hægt að áfrýja ákærunni? Að Hæstiréttur, æðsta dómsvald landsins, getur uppdiktað dóma? 1. gr. 1. í lögum um meðferð opinberra mála: Þau mál öll, sem handhafar ríkisvaldsins höfða til refsingar lögum samkvæmt, skulu fara eftir ákvæðum laga þessara. 31. gr. Þeir sem fara með ákæruvald og annast rannsókn skulu vinna að því að hið sanna og rétta komi í ljós. 45. gr. Sönnunarbyrði um sekt sakbornings og atvik sem telja má honum í óhag, hvílir á ákæruvaldinu. 48. gr. Dómur skal reistur á sönnunargögnum sem færð eru fram við meðferð máls fyrir dómi. 59. gr. 2. Dómari skal gæta þess að spurningar hans og annarra séu ákveðnar, ekki tvíræðar eða meiðandi, ekki særandi eða móðgandi framar en efni standa til og ekki sýnilega þýðingarlausar. 66. gr. 4. Rannsóknari er sá starfsmaður lögreglu eða ákæruvalds sem rannsókn stýrir eða sinnir hverju sinni. 71. gr. c. hegðun hans og fyrri brot; um þessi atriði skal afla sakarvottorðs og annarra gagna, svo sem endurrita fyrri dóma ef ástæða er til. 77. gr. 1. Nú telur rannsóknari rannsókn lokið og gögn komin fram sem geti leitt til saksóknar og sendir hann þá ríkissaksóknara rannsóknargögnin … Með rannsóknargögnum sendir rannsóknari að jafnaði greinargerð um rannsóknina þar sem kemur fram samandregin lýsing á atriðum sem hann telur ákæru geta beinst að. Í 2. mgr. 40. gr. og 77. gr. kemur fram að réttargæslumaður hefur sömu réttindi og skyldur og verjandi. 86. gr. 1. Hald má leggja á bréf, símskeyti og aðrar sendingar sem eru í vörslu Pósts og síma, enda sé það gert vegna rannsóknar út af broti sem varðar getur þyngri refsingu en sektum. 111. gr. Sérhver refsiverður verknaður skal sæta ákæru, nema annað sé sérstaklega ákveðið í lögum. 157. gr. 1. Ríkissaksóknari og ákærði geta aflað frekari gagna í málinu. Um miðjan nóvember sendi ég áskorun til allra alþingismanna um réttarfarsdómstól, afturvirkan. - Meðfylgjandi voru staðreyndir í málinu - þeir ætla ekki að gera neitt. Ofantalin lög eru samþykkt af Alþingi, en ríkissaksóknari og Hæstiréttur mega brjóta þau. Það er enginn til að framfylgja þeim. Þeir geta gert hvað eina sem þeim sýnist. Það er siðlaust og fjarstæðukennt. Bæði embættin eru háð fjárframlögum frá Alþingi, en samt alvald. Annað ákærir fyrir lögbrot og glæpi og hitt fellir dóma. Sá sem átti að vera rannsóknari í málinu var þá yfirmaður rannsóknarlögreglu Kópavogs. Annaðist yfirheyrslur ásamt undirmanni. Spurði eingöngu út í tvö sönnunargögn sem hann túlkaði ranglega. Hunsaði allar niðurstöður tæknideildar; vettvangsskýrslu, aðrar upplýsingar og niðurstöður. Sú litla vinna sem hann vann var eingöngu til að skaða málið. Skilaði ekki greinargerð. Upplýsingar úr lögregluskýrslum. Ríkissaksóknari gerði ekki athugasemd við að greinargerð vantaði. Hann gaf út ákæru um manndráp, en ekki einnig um nauðgun. Ekki hægt að finna forsendur og rök fyrir þeirri ákvörðun þar sem ekkert er skjalfest. Hann vissi að ekki er hægt að áfrýja ákæru. Ríkissaksóknari er vel tryggður. Dómurum Hæstaréttar ber skylda til að lesa öll gögn sem þeir fá í hendur. Dómur var ekki byggður á sönnunargögnum úr lögregluskýrslum sem liggja öll fyrir. Þeir virðast hafa skáldað hann upp úr endurriti héraðsdóms þar sem hvorki voru lögð fram sönnunargögn né greinargerð. Tilvitnun úr endurriti í dómi Hæstaréttar: „Héraðsdómur hefði ekki talið framburð hans um þau fá staðist og ekki væri efni til að ætla, að mat á sönnunargildi munnlegs framburðar Á fyrir dómi væri rangt svo að einhverju skipti um úrslit málsins." Eftir dóm Hæstaréttar er ekki hægt að fá málið tekið upp að nýju fyrir íslenskum dómstólum né Mannréttindadómstóli Evrópu. Hæstiréttur er einnig vel tryggður. Þeim fannst ekki frekar en héraðsdómi skipta máli hvernig eða hvers vegna 21 árs gömul stúlka var myrt?! Það kostaði hana lífið að berjast á móti nauðgara sínum. Hún skildi 14 áverka eftir á honum, suma blóðuga. Hún barðist af þvílíku offorsi að hann hélt ekki lim sínum inni í kynfærum hennar. Þá kýldi hann hana af miklu afli í ennið, sem varð að 2,5-3 sm risastórri kúlu. Hún missti meðvitund. Hann bar hana 6 metra að svalahandriði. Þar rankaði hún við sér og rak upp óp. Hann kastaði henni samt fram af handriðinu, 26 metra fall á steinsteypta stétt. Unga stúlkan var dóttir mín. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Áform um að eyðileggja Ísland! Jóna Imsland Skoðun Lummuleg áform heilbrigðisráðherra Ragnar Sigurður Kristjánsson Skoðun Rölt að botninum Smári McCarthy Skoðun Lýðskrum Skattfylkingarinnar Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Hver á að fá súrefnisgrímuna fyrst? Davíð Bergmann. Skoðun Tekur ný ríkisstjórn af skarið? Árni Einarsson Skoðun Krabbamein – reddast þetta? Halla Þorvaldsdóttir Skoðun Málþóf spillingar og græðgi á Alþingi Jón Frímann Jónsson Skoðun Valdið yfir sjávarútvegsmálunum Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Strandveiðar í gíslingu – Alþingi sveltir sjávarbyggðir Árni Björn Kristbjörnsson Skoðun Skoðun Skoðun Ábyrgðin er þeirra Vilhjálmur Árnason skrifar Skoðun Dæmt um form, ekki efni Hörður Arnarson skrifar Skoðun Að þröngva lífsskoðun upp á annað fólk Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Um fundarstjórn forseta Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hjálpartæki – fyrir hverja? Júlíana Magnúsdóttir skrifar Skoðun Menntasjóður námsmanna og ECTS einingar Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Áform um að eyðileggja Ísland! Jóna Imsland skrifar Skoðun Í 1.129 daga hefur Alþingi hunsað jaðarsettasta hóp samfélagsins Grímur Atlason skrifar Skoðun Tekur ný ríkisstjórn af skarið? Árni Einarsson skrifar Skoðun Strandveiðar í gíslingu – Alþingi sveltir sjávarbyggðir Árni Björn Kristbjörnsson skrifar Skoðun Rölt að botninum Smári McCarthy skrifar Skoðun Að fortíð skal hyggja þegar framtíð skal byggja Einar G. Harðarson skrifar Skoðun Málþóf spillingar og græðgi á Alþingi Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Lýðskrum Skattfylkingarinnar Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Krabbamein – reddast þetta? Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Valdið yfir sjávarútvegsmálunum Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Lummuleg áform heilbrigðisráðherra Ragnar Sigurður Kristjánsson skrifar Skoðun Hver á að fá súrefnisgrímuna fyrst? Davíð Bergmann. skrifar Skoðun Baráttan um kjör eldra fólks Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Menntamál íslenskra grunnskólabarna hafa verið til umfjöllunar – sem er vel. Miklu verra er tilefnið Karen Rúnarsdóttir skrifar Skoðun Elsku Íslendingar, styðjum saman Grindavík Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Svigrúm Eydísar á fölskum grunni Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Betri vegur til Þorlákshafnar er samkeppnismál Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Óvirðing við lýðræðislegar hefðir, gegn stjórnarskrá, trúnaðarbrot gagnvart kjósendum Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Lík brennd í Grafarvogi Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Er handahlaup valdeflandi? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Á jaðrinum með Jesú Daníel Ágúst Gautason skrifar Skoðun Þeir sem verja stórútgerðina – og heimsvaldastefnuna Karl Héðinn Kristjánsson skrifar Skoðun Gervigreindin beisluð Hanna Kristín Skaftadóttir,Helga Sigrún Harðardóttir skrifar Skoðun Kúnstin að vera ósammála sjálfum sér Heiða Ingimarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Menntamál íslenskra grunnskólabarna hafa verið til umfjöllunar – sem er vel. Miklu verra er tilefnið Karen Rúnarsdóttir skrifar
Skoðun Óvirðing við lýðræðislegar hefðir, gegn stjórnarskrá, trúnaðarbrot gagnvart kjósendum Arnar Þór Jónsson skrifar