Allt sem börn þurfa að vita læra þau í leikskóla Björg Sigurvinsdóttir skrifar 18. ágúst 2011 06:00 Flest það sem börn þurfa virkilega að vita um lífið og tilveruna, hvernig þau eiga að hegða sér, hvað þau eiga að gera, læra þau í leikskóla. Þau læra um lýðræðisleg gildi og kærleikann, að taka tillit til annarra, bera umhyggju fyrir öðrum, meiða ekki annað fólk, lifa í jafnvægi og leggja sig eftir góðan hádegismat. Börn læra að leika sér saman á sanngjarnan hátt, deila með sér og biðja fyrirgefningar þegar þau særa aðra. Börn læra að skila hlutum á sinn stað, laga til eftir sig og taka ekki það sem aðrir eiga. Börn læra að tala, teikna, mála, syngja og hreyfa/dansa í gegnum leik og vinnu á skapandi hátt á hverjum degi. Börn læra að þegar þau fara út í heiminn þurfa þau að muna eftir því að gæta sín á bílunum, leiða og halda hópinn. Síðast en ekki síst að taka eftir öllum frábæru undrunarefnunum í kringum sig. Hugsið ykkur hve miklu betri heimurinn væri ef við myndum öll hafa þá reglu í öllum þjóðfélögum að bera umhyggju hvert fyrir öðru og hafa lýðræðisleg vinnubrögð að leiðarljósi. Skila öllu á sinn stað og laga til eftir okkur. Borða hollan og góðan mat og leggja okkur svo með hlý teppi um stund. Satt að segja er alveg sama á hvaða aldri við erum, ef við förum út í heiminn er best að haldast í hendur og standa saman. Í spjallinu hér að framan er stuðst við Robert Fulghum sem staðhæfir að það frábæra veganesti sem hann fékk út í lífið, hafi hann fengið í leikskóla. Til þess að slík skilyrði skapist og nái að blómstra og dafna verður að beina kastljósinu að leikskólakennurum, lykilfólkinu í leikskólastarfinu. Leikskólakennurum er vel ljós sú ábyrgð sem þeir hafa lagt á sínar herðar með vali á starfsvettvangi. Þeir eru boðnir og búnir til að styðja og leiða börnin á þroskabraut sinni, þeir gefa mikið af sér og sýna börnum mikla alúð og virðingu. Leikskólakennarar gera sér grein fyrir að kennsla ungra barna getur verið krefjandi og flókin, en jafnframt gefandi, fjölbreytt og skemmtileg. Þegar þetta er skrifað blasir við verkfall leikskólakennara, ef ekki verður búið að semja við þá fyrir boðað verkfall 22. ágúst. Styðjum leikskólakennara og stöndum öll saman með þeim í sanngjarnri kjarabaráttu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Sættum okkur ekki við atvinnuleysi Illugi Gunnarsson,Ragnhildur Björt Björnsdóttir Skoðun Einfaldasta sagan er ekki alltaf sú sanna Sigurður Árni Reynisson Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir Skoðun Halldór 25.07.2026 Halldór Hver fer í slíkar „samningaviðræður“? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson Skoðun Skoðun Skoðun Einfaldasta sagan er ekki alltaf sú sanna Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver fer í slíkar „samningaviðræður“? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sættum okkur ekki við atvinnuleysi Illugi Gunnarsson,Ragnhildur Björt Björnsdóttir skrifar Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hvaða kröfur eigum við að gera? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar Skoðun Er kominn tími á „Íslenska landklasann“? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Um hvað er hægt að semja? Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Sumarið, samveran og samspil taugakerfa Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Þegar peningarnir og pólitíkin mæta nýjum veruleika Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bíp... bíp... bíp… Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson skrifar Skoðun Dauðans alvara – fölsuð lyf og ólögleg lyfsala Alma D. Möller,Rúna Hauksdóttir skrifar Skoðun Hvað er samfélagsmiðill? Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Stöðugleiki í heljargreipum Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson skrifar Skoðun Eru Íslendingar afglapar í samningatækni? Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Baldur snýr heim á Breiðafjörð Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar allir bera ábyrgð? Snorri Birgisson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru samningaviðræður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Dagur, bannað að plata! Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Íslenska sumarveðrið dýrmæt auðlind? Gunnar Salvarssson skrifar Sjá meira
Flest það sem börn þurfa virkilega að vita um lífið og tilveruna, hvernig þau eiga að hegða sér, hvað þau eiga að gera, læra þau í leikskóla. Þau læra um lýðræðisleg gildi og kærleikann, að taka tillit til annarra, bera umhyggju fyrir öðrum, meiða ekki annað fólk, lifa í jafnvægi og leggja sig eftir góðan hádegismat. Börn læra að leika sér saman á sanngjarnan hátt, deila með sér og biðja fyrirgefningar þegar þau særa aðra. Börn læra að skila hlutum á sinn stað, laga til eftir sig og taka ekki það sem aðrir eiga. Börn læra að tala, teikna, mála, syngja og hreyfa/dansa í gegnum leik og vinnu á skapandi hátt á hverjum degi. Börn læra að þegar þau fara út í heiminn þurfa þau að muna eftir því að gæta sín á bílunum, leiða og halda hópinn. Síðast en ekki síst að taka eftir öllum frábæru undrunarefnunum í kringum sig. Hugsið ykkur hve miklu betri heimurinn væri ef við myndum öll hafa þá reglu í öllum þjóðfélögum að bera umhyggju hvert fyrir öðru og hafa lýðræðisleg vinnubrögð að leiðarljósi. Skila öllu á sinn stað og laga til eftir okkur. Borða hollan og góðan mat og leggja okkur svo með hlý teppi um stund. Satt að segja er alveg sama á hvaða aldri við erum, ef við förum út í heiminn er best að haldast í hendur og standa saman. Í spjallinu hér að framan er stuðst við Robert Fulghum sem staðhæfir að það frábæra veganesti sem hann fékk út í lífið, hafi hann fengið í leikskóla. Til þess að slík skilyrði skapist og nái að blómstra og dafna verður að beina kastljósinu að leikskólakennurum, lykilfólkinu í leikskólastarfinu. Leikskólakennurum er vel ljós sú ábyrgð sem þeir hafa lagt á sínar herðar með vali á starfsvettvangi. Þeir eru boðnir og búnir til að styðja og leiða börnin á þroskabraut sinni, þeir gefa mikið af sér og sýna börnum mikla alúð og virðingu. Leikskólakennarar gera sér grein fyrir að kennsla ungra barna getur verið krefjandi og flókin, en jafnframt gefandi, fjölbreytt og skemmtileg. Þegar þetta er skrifað blasir við verkfall leikskólakennara, ef ekki verður búið að semja við þá fyrir boðað verkfall 22. ágúst. Styðjum leikskólakennara og stöndum öll saman með þeim í sanngjarnri kjarabaráttu.
Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir Skoðun
Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar
Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar
Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar
Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir Skoðun