Beðið eftir ákvörðun Moody´s 11. apríl 2011 12:39
Að viðbrögðum ESA slepptum í Icesave málinu hafa enn ekki borist viðbrögð frá þeim erlendum aðilum sem hvað mest hafa að segja um þróun mála hérlendis næsta kastið. Stóru matsfyrirtækin hafa enn ekki kveðið úr um hvaða áhrif úrslit atkvæðagreiðslunnar hafi á lánshæfiseinkunn ríkissjóðs. Þetta segir í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að verði lánshæfiseinkunnin lækkuð hefur það neikvæð áhrif á fjármögnun Búðarhálsvirkjunar og kann að seinka viðleitni ríkissjóðs til að sækja lánsfé erlendis. Hafist matsfyrirtækin hins vegar ekki að næstu daga hlýtur það að teljast jákvætt þar sem þar með yrði eytt óvissuþætti sem erlendir fjárfestar horfa talsvert til. Gæti því fjárfesting hérlendis glæðst í kjölfarið. Eftir niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave síðastliðinn laugardag munu næstu skref í Icesave-deilu Íslands við Breta og Hollendinga líklega ráðast á vettvangi EFTA. Í tilkynningu frá ESA, eftirlitsstofnun EFTA, kemur fram að vænst er skjótra svara frá íslenskum stjórnvöldum við áminningarbréfi stofnunarinnar frá maí í fyrra. Í máli ráðamanna í gær kom fram að stefnt væri að því að svara bréfinu um miðjan maímánuð. Í kjölfarið metur ESA svör stjórnvalda og ef þau breyta ekki frumniðurstöðu stofnunarinnar mun Íslandi verða veittur tveggja mánaða frestur til þess að bregðast við. Töluverðar líkur eru því á að málið verði rekið fyrir EFTA-dómstólnum á haustdögum. Meiri óvissa ríkir um hvort stjórnvöld í Bretlandi og Hollandi muni sækja málið frekar fyrir dómstólum, og má gera ráð fyrir að niðurstaða EFTA-dómstólsins skipti þar verulegu máli Ekki er enn ljóst hvort niðurstaðan á laugardag hefur áhrif á efnahagsáætlun AGS og stjórnvalda. Fulltrúi AGS sagði í gær að höfnun Icesave kynni að seinka fimmtu endurskoðun áætlunar sjóðsins og stjórnvalda, sem fara átti fram í lok aprílmánaðar. „Raunar teljum við líklegt að endurskoðunin hefði tafist burtséð frá Icesave þar sem ýmsir aðrir þættir standa þar enn út af borðinu, svo sem endanleg niðurstaða varðandi sparisjóðakerfið næstu árin,“ segir í Morgunkorninu.
Mest lesið B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Fleiri fréttir B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Sjá meira