Bær í eigu þjóðar Guðjón Ragnar Jónasson skrifar 3. ágúst 2011 09:00 jmnkhkjhn Kolbrún Elfa Sigurðardóttir menntaskólakennari Í huga íslensku þjóðarinnar skipa Þingvellir ákveðinn sess enda staðurinn sögufrægur og vinsæll áningarstaður til margra ára. Margir eiga góðar minningar úr sunnudagsbíltúrum þegar haldið var á Þingvöll og oft og einatt komið við á Hótel Valhöll. Eftir bruna Valhallar hefur mikið verið rætt um framtíð Þingvallastaðar. Mörgum finnst sem tómarúm hafi skapast á staðnum í kjölfar brunans. Uppi hafa verið margs konar hugmyndir um uppbyggingu á Þingvallastað. Í þeim efnum sýnist sitt hverjum en við erum í hópi þeirra sem söknum þess að geta hvergi áð á staðnum. Góður kaffibolli er nefnilega órjúfanlegur þáttur velheppnaðrar Þingvallaferðar. Á umliðnum misserum höfum við ásamt gönguklúbbnum okkar þrammað um Þingvelli og velt líkt og margir aðrir fyrir okkur framtíð svæðisins þar sem Valhöll stóð áður. Klúbbfélagar voru sammála um að ekki ætti að leggjast í neinar byggingaframkvæmdir þarna. Svæðið er kyrrsælt og heildarmynd þess ber að varðveita. Hins vegar vorum við samt á því að kaffinu þyrfti að gera betri skil. Þegar við ræddum málin komumst við að sameiginlegri niðurstöðu sem fól í sér samþættingu náttúruverndar og kaffidrykkju. Til þess að svo mætti verða vorum við sammála um að hvorki þyrfti að byggja neitt né breyta nokkru varðandi ásýnd staðarins. Margir kunna að spyrja hvernig okkar ágæti gönguklúbbur komst að þessari niðurstöðu. Jú, þegar við sátum í kvöldroðanum í brekkunni fyrir ofan rústir Valhallar og horfðum til austurs urðum við fyrir hugljómun. Við sáum að á Þingvöllum er nefnilega til staðar nægjanlegt húsnæði fyrir kaffihús sem um leið gæti orðið vísir að safni og upplýsingamiðstöð. Húsið er upphaflega byggt 1930 og er 365 fermetrar að stærð og hefur fimm burstir. Hér erum við að vísa í gamla Þingvallabæinn sem nú hýsir embættisbústað forsætisráðherra. Spurningin sem læddist að okkur í gönguklúbbnum var hvers vegna ríkisstjórnin gæfi ekki bara þjóðinni embættisbústaðinn. Við vorum sammála um að þar mætti koma fyrir snyrtilegu kaffihúsi með góðri salernisaðstöðu. Bærinn er að okkar mati fallegur og endurspeglar byggingargerð ákveðins tíma í þjóðarsögunni. Ef gamli Þingvallabærinn fengi nýtt hlutverk mætti segja að ríkisstjórnin gæfi þjóðinni bústað sinn. Hér yrði um táknrænan gjörning að ræða enda er það okkar mat að engin þörf sé á að embætti forsætisráðherra fylgi sumarhús. Við teljum að sérstök fríðindi og íburður ráðamönnum til handa passi ekki við hið nýja Ísland sem ráðamenn boðuðu að afloknu efnahagshruni. Ef halda þarf veislur fyrir tigna erlenda gesti á vegum hins opinbera er það okkar mat að áfram megi nýta salarkynni Þingvallabæjarins. Gestum hins opinbera er alls ekkert of gott að stíga inn í salarkynni sem jafnframt eru samboðin alþýðu þessa lands. Með því að gefa þjóðinni gamla Þingvallabæinn er hægt að nýta brunabæturnar sem fengust þegar Hótel Valhöll varð eldi að bráð til uppbyggingar á Þingvöllum. Bætur þessar eru samkvæmt okkar upplýsingum um 300 milljónir. Hugmyndafræði ríkisstjórnar sem kennir sig við félagshyggju smellpassar við tillögu okkar um að gefa þjóðinni gamla Þingvallabæinn. Tillagan sparar ekki bara peninga og stuðlar að verndun Þingvalla. Ef af yrði væri um táknrænan gjörning að ræða sem rímar vel við þau gildi sem núverandi forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, hefur staðið fyrir í gegnum árin. Með því að gefa þjóðinni embættisbústað sinn yrði hún öðrum ráðamönnum fyrirmynd. Stjórnmálamenn nútímans skulu hafa hugfast að eftir stóra efnahagshrunið eiga þeir þjóðinni gjöf að gjalda. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Miðflokkurinn í Kópavogi treystir konum Thelma Árnadóttir Skoðun Kerfislægt rán um hábjartan dag: Þegar silkihúfurnar brenna framtíðina Sigurður Sigurðsson Skoðun Getnaðarsigur og fullnægjandi árangur María Ellen Steingrímsdóttir Skoðun Fimm sunnlensk sveitarfélög neita íbúum um velferðarþjónustu án skýrrar lagaheimildar Guðrún Margrét Njálsdóttir,Steinþór Hreinsson,Þröstur Sverrisson Skoðun Hvað kom fyrir þig í fyrsta kafla ævisögu þinnar? Diljá Ámundadóttir Zoega Skoðun Er til ósýnileg fötlun? Arnar Helgi Lárusson Skoðun Fjárfestum í börnum Pétur Marteinsson Skoðun Íslendingar sem ég hef hitt þegar ég reyni að tala íslensku Valerio Gargiulo Skoðun Skrefin við lok grunnskóla Arnar Þorsteinsson,Guðrún Helga Ástríðardóttir,Svanhildur Svavarsdóttir Skoðun Í stuttu máli: Hægt er að semja við ESB um sjávarútveg (staðfest) Dagur B. Eggertsson Skoðun Skoðun Skoðun Neyðarútgangur út úr olíukreppunni Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Gleðilegt sumar, Happy First Day of Summer, Wesołego pierwszego dnia lata. Þorkell Daníel Jónsson skrifar Skoðun Ábyrgðarmörk og vinnufriður þegar pólitík mætir fagmennsku Andrés Bertelsen skrifar Skoðun Í stuttu máli: Hægt er að semja við ESB um sjávarútveg (staðfest) Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Læknisþjónusta á ferðalögum Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Miðflokkurinn í Kópavogi treystir konum Thelma Árnadóttir skrifar Skoðun Afnemum vaxtarmörk í Hafnarfirði - Byggjum fyrir fólkið Arnhildur Ásdís Kolbeins skrifar Skoðun Þið eruð bara eins og hlaupár Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Jafnrétti er ákvörðun Ása Björk Jónsdóttir,Helga Kristín Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Krýsuvíkursamtökin 40 ára Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Skrefin við lok grunnskóla Arnar Þorsteinsson,Guðrún Helga Ástríðardóttir,Svanhildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Netvarnir í gervigreindum heimi Guðmundur Arnar Sigmundsson skrifar Skoðun Hvað kom fyrir þig í fyrsta kafla ævisögu þinnar? Diljá Ámundadóttir Zoega skrifar Skoðun Er til ósýnileg fötlun? Arnar Helgi Lárusson skrifar Skoðun Kerfislægt rán um hábjartan dag: Þegar silkihúfurnar brenna framtíðina Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Menntamál ættu ekki að vera pólitískt þrætuefni Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Við vitum betur – en gerum ekki nóg Eva Einarsdóttir skrifar Skoðun Getnaðarsigur og fullnægjandi árangur María Ellen Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Fjárfestum í börnum Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Leikurinn er ekki tapaður Einar Mikael Sverrisson skrifar Skoðun Börnin geta ekki beðið Sigurveig Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Réttur barna til menntunar Salvör Nordal skrifar Skoðun Grundarreitur í gamla Hveragerði - byggjum rétt Arnar H. Halldórsson skrifar Skoðun Inngilding og þátttaka fatlaðra barna Snæfríður Þóra Egilson skrifar Skoðun Af hlutleysisstefnu ríkisútvarpsins og falleinkunn fjármálaráðs Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Fimm sunnlensk sveitarfélög neita íbúum um velferðarþjónustu án skýrrar lagaheimildar Guðrún Margrét Njálsdóttir,Steinþór Hreinsson,Þröstur Sverrisson skrifar Skoðun Verk að vinna Elsa María Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Foreldrahús lokar 1. maí! Viljum við það? Dagbjört Ósk Steindórsdóttir skrifar Skoðun Meirihluti fólks með fötlun í Bretlandi styður rétt til dánaraðstoðar Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Íslendingar sem ég hef hitt þegar ég reyni að tala íslensku Valerio Gargiulo skrifar Sjá meira
Fimm sunnlensk sveitarfélög neita íbúum um velferðarþjónustu án skýrrar lagaheimildar Guðrún Margrét Njálsdóttir,Steinþór Hreinsson,Þröstur Sverrisson Skoðun
Skrefin við lok grunnskóla Arnar Þorsteinsson,Guðrún Helga Ástríðardóttir,Svanhildur Svavarsdóttir Skoðun
Skoðun Gleðilegt sumar, Happy First Day of Summer, Wesołego pierwszego dnia lata. Þorkell Daníel Jónsson skrifar
Skoðun Í stuttu máli: Hægt er að semja við ESB um sjávarútveg (staðfest) Dagur B. Eggertsson skrifar
Skoðun Skrefin við lok grunnskóla Arnar Þorsteinsson,Guðrún Helga Ástríðardóttir,Svanhildur Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Kerfislægt rán um hábjartan dag: Þegar silkihúfurnar brenna framtíðina Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Af hlutleysisstefnu ríkisútvarpsins og falleinkunn fjármálaráðs Brynjar Níelsson skrifar
Skoðun Fimm sunnlensk sveitarfélög neita íbúum um velferðarþjónustu án skýrrar lagaheimildar Guðrún Margrét Njálsdóttir,Steinþór Hreinsson,Þröstur Sverrisson skrifar
Skoðun Meirihluti fólks með fötlun í Bretlandi styður rétt til dánaraðstoðar Ingrid Kuhlman skrifar
Fimm sunnlensk sveitarfélög neita íbúum um velferðarþjónustu án skýrrar lagaheimildar Guðrún Margrét Njálsdóttir,Steinþór Hreinsson,Þröstur Sverrisson Skoðun
Skrefin við lok grunnskóla Arnar Þorsteinsson,Guðrún Helga Ástríðardóttir,Svanhildur Svavarsdóttir Skoðun