Aftur útboð á ríkisbréfum - þátttaka dræm síðast 7. september 2011 13:03
Næstkomandi föstudag kl. 11:00 fer fram útboð á ríkisbréfum hjá Lánamálum ríkisins samkvæmt morgunkorni Íslandsbanka. Líkt og í síðastliðnum þremur útboðum verða bréf til sölu í óverðtryggðu flokkunum RIKB13 og RIKB16 í boði. Er útboðið í samræmi við útgáfuáætlun Lánamála og eru útboðsskilmálarnir með hefðbundnum hætti þannig að lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverði útboðsins. Óhætt er að segja að þátttaka í síðasta ríkisbréfaútboði þann 19. ágúst þar sem í boði voru sömu flokkar og eru á föstudag hafi verið í minna lagi. Þannig bárust tilboð að fjárhæð 1.005 m.kr. í RIKB13 og var þeim öllum hafnað. Í RIKB16 bárust tilboð fyrir 3.550 m.kr. og var þeim tekið fyrir 2.100 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 5,16% sem var í takti við kröfu bréfanna þennan daginn. Eftir þetta útboð höfðu Lánamál selt bréf í RIKB16 fyrir um 12,5 ma.kr. það sem af er þriðja ársfjórðungi en þau áforma að selja bréf í flokknum fyrir 3-15 ma.kr. á fjórðungnum. Á sama tíma hafa þau selt bréf í RIKB13 fyrir 8,5 ma.kr. en áætluð útgáfa í flokknum er 5-10 ma.kr. á þriðja fjórðungi. Undirtektirnar í síðasta útboði má rekja til vaxtaákvörðunar peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands sem fór fram tveimur dögum fyrir útboðið. Viðbrögðin á fjármálamarkaði báru þess augljós merki að ákvörðun hennar um hækkun vaxta hafi komið markaðinum í opna skjöldu, en almennt virtist markaðurinn búast við óbreyttum vöxtum. Hækkaði því krafa óverðtryggða bréfa í kjölfarið og hafði ákvörðunin mun meiri áhrif á kröfu RIKB13 en RIKB16, enda um styttri flokk að ræða og því eðlilegt að breyttar vaxtavæntingar til skemmri tíma hafi meiri áhrif á hann.
Mest lesið Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Viðskipti innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Lokanir, lægðir og samviskubit Atvinnulíf Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Viðskipti innlent Rafnar fylgir Herði og segir upp Viðskipti innlent Er bíllinn klár fyrir veturinn? Kíktu á vetrartékklista Bílanausts Lífið samstarf Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Sjá meira