Önnur skuldabréfaútgáfa Landsvirkjunar nýtur betri kjara en hjá ríki 7. september 2011 12:58 Landsvirkjun.
Önnur skuldabréfaútgáfa Landsvirkjunar (LV) á stuttum tíma leit dagsins ljós í gær þegar fyrirtækið tilkynnti um sölu á skuldabréfum að fjárhæð 63,2 m. Bandaríkjadollara, jafnvirði u.þ.b. 7,3 ma.kr., samkvæmt morgunkorni Íslandsbanka. Þar segir ennfremur að bréfin eru til 7 ára og eru þau seld á 4,3% ávöxtunarkröfu. Vaxtagreiðslur eru árlegar en höfuðstóllinn er endurgreiddur í einu lagi á lokagjalddaga. Arctica Finance hf. er umsjónaraðili með útgáfunni. Fyrir rúmri viku tilkynnti Landsvirkjun um 70 m. dollara útgáfu til tíu ára. Ber sú útgáfa 4,9% vexti sem greiðast hálfsárslega en höfuðstóllinn er endurgreiddur á lokagjalddaga. Fyrirtækið hefur því aflað ríflega 133 m. dollara á síðustu dögum. Segir í fréttatilkynningum LV að fénu verði meðal annars varið til framkvæmda á Norðausturlandi sem áætlað er að hefjist á næsta ári. Þá er í tilkynningum fyrirtækisins sagt að þar sé að hluta um endurfjármögnun að ræða, en samkvæmt hálfsársuppgjöri LV námu afborganir langtímaskulda frá 1. júlí síðastliðnum til júlíloka á næsta ári 197 m. dollara. Athygli vekur hversu hagstæðra kjara Landsvirkjun nýtur um þessar mundir, ef marka má útboðin tvö. Að því gefnu að 10 ára útgáfan hafi verið seld á pari, og að ávöxtunarkrafa þeirrar útgáfu sé 4,9% líkt og nafnvextirnir, má álykta sem svo að fyrirtækið njóti hagstæðari kjara en ríkissjóður, hvort sem miðað er við dollara eða krónur.
Mest lesið Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Tvíburar ráðnir til BPO innheimtu Viðskipti innlent Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Sjá meira