Flytja Gouda ost til Hollands - útflutningskvótinn er þó að klárast 7. september 2011 15:02 Mjólkursamsalan. Myndin er úr safni.
Mjólkursamsalan (MS) flutti á dögunum út gám af gouda osti til Hollands. Það er í fyrsta skipti í tólf ár sem fastur ostur er fluttur út frá Íslandi og síðast var fastur ostur fluttur út að einhverju ráði árið 1992. Þetta kemur fram á heimasíðu Bændablaðsins. Þar segir að um tilraunaverkefni sé að ræða og segir Jón Axel Pétursson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs MS, að verið sé að kanna markaðsmöguleika með útflutningnum. Gríðarlega góður gangur hefur verið í sölu á skyri í Finnlandi upp á síðkastið og er það hvetjandi til að áframhaldandi markaðsstarfs að því er greinir frá á heimasíðu Bændablaðsins. Kaupendur hafi verið mjög ánægðir með gæði ostsins samkvæmt Bændablaðinu, en ekki er ljóst á þessari stundu hvaða framhald verður á. Meðal þess sem hefur þar áhrif er að útflutningskvóti til ESB-landa er takmarkaður og skyrútflutningurinn til Finnlands fer langt með að ganga á þann kvóta allan. Sótt hefur verið um viðbótarkvóta. Þá mun útflutningur á mysuprótíndrykknum Hleðslu til Finnlands hefjast um komandi mánaðamót. Móttökurnar við Hleðslu hafa verið góðar samkvæmt Bændablaðinu frá því drykkurinn var settur á markað. Hleðsla fékk meðal annars gullverðlaun í sínum flokki á mjólkurvörusýningunni í Herning í nóvember í fyrra. Ekki er langt síðan að mysa, sem Hleðsla er framleidd úr, var aukaafurð sem var til óþurftar og vandræða í mjólkurvinnslu hér á landi. Hleðsla er ekki skilgreind sem mjólkurafurð og hefur því ekki áhrif á þann kvóta sem mjólkurútflytjendur eru að nýta. Smjör, undanrennuduft, nýmjólkurduft og skyr, hafa síðustu misseri verið nálega einu mjólkurafurðirnar sem fluttar hafa verið út svo einhverju nemi. Þó hefur einnig verið flutt út nokkuð magn af ferskum ostum til Bandaríkjanna. Því verður athyglisvert að fylgjast með viðtökum við Hleðslu í Finnlandi og mögulegum frekari útflutningi á mjólkurafurðum á næstu misserum. Hægt er að nálgast frétt Bændablaðsins hér.
Mest lesið Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Viðskipti erlent Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum Viðskipti innlent Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés Viðskipti erlent „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Fleiri fréttir Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Sjá meira