Keflavík spillti sigurhátíð Hamarskvenna í Hveragerði Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. febrúar 2011 19:06 Bryndís Guðmundsdóttir lék vel fyrir Keflavík í Hveragerði í kvöld. Mynd/Arnþór
Keflavík endaði sextán leikja sigurgöngu Hamars í Iceland Express deild kvenna og kom í veg fyrir að Hamarsliðið tryggði sér deildarmeistaratitilinn í uppgjöri tveggja efstu liðanna í Hveragerði í kvöld. Keflavík vann leikinn 93-86 eftir að hafa verið 13 stigum yfir í hálfleik, 55-42, og náði mest 22 stiga forystu í seinni hálfeiknum. Hamar byrjaði leikinn samt vel og var 26-16 yfir eftir fyrsta leikhlutann en Keflavíkurliðið breytti stöðunni úr 28-19 í 32-49 (30-4) á sex mínútna kafla í öðrum leikhlutanum. Hamar er þó enn með fjögurra stiga forystu á Keflavík þegar liðin eiga þrjá leiki eftir. Keflavík á enn möguleika á því að verða deildarmeistari en liðin eiga síðan eftir að mætast í Keflavík í lokaumferðinni. Jacquline Adamshick átti frábæran leik hjá Keflavík og var með 33 stig og 20 fráköst en Bryndís Guðmundsdóttir var einnig mjög öflug með 25 stig og 6 stoðsendingar. Pálína Gunnlaugsdóttir skoraði 15 stig fyrir Keflavík og nýi serbneski bakvörðurinn Marina Caran var með 7 stig og 7 stoðsendingar. Hjá Hamar var Jalesea Butler með þrennu, 29 stig, 13 fráköst og 10 stoðsendingar og Kristrún Sigurjónsdóttir skoraði 19 stig. Það vakti athygli að Slavia Dimovska, leikstjórnandi Hamarsliðsins, skoraði aðeins sex stig á 38 mínútum í leiknum.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Verður Aron þjálfari FH? Handbolti Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Enski boltinn Ef ég væri að spila gegn Liverpool myndi ég trúa á sigur Íslenski boltinn Danskur skúrkur og Wolfsburg fallið í fyrsta sinn í 30 ár Fótbolti Guðni eftir sigur FH: „Gáfumst aldrei upp“ Íslenski boltinn Öflug sveit á Norðurlandamótið Sport Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Enski boltinn Uppgjörið: Breiðablik - FH 2-3 | Veisla í Kópavogi Íslenski boltinn Haukar ósigraðir á toppnum Íslenski boltinn Enn er Rosenborg í veseni Fótbolti Fleiri fréttir Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Gáfu miðann sinn og misstu af Grindavík verða Íslandsmeistari Mætti brjálaður til leiks eftir að hafa misst af verðlaunum Sjáðu öll tilþrif Pargo: „Aldrei séð annað eins á fjölum á Íslandi“ „Stjörnufólk er pirrað“ Ól upp dólg í nýkrýndum Íslandsmeisturum Myndaveisla: Sigurhátíð Grindvíkinga í Síkinu Uppgjörið og viðtöl: Tindastóll - Grindavík 101 - 109 | Grindavík er Íslandsmeistari Þakkaði guði eftir leik sem gæti verið hans síðasti Tárvot sigurstund bræðranna frá Grindavík Baldur tekur við Álftnesingum Áfall fyrir Grindavík: Kane og Óli meiddir og ekki með í kvöld Vilja ekki sjá annað lið fagna titlinum í Síkinu, aftur „Veit ekki hvort það er hægt en vonandi reyna þau“ Tókst takmarkið eftir stórskemmtilega seríu Magnaðar meistaramyndir úr Njarðvík Sjá meira