Arion banki býður BM Vallá til sölu 31. mars 2011 07:41
Ákveðið hefur verið að bjóða til sölu allt hlutafé í BM Vallá, en fyrirtækið er í eigu Eignabjargs, dótturfélags Arion banka. Upphaf söluferlis á B.M. Vallá ehf. verður tilkynnt formlega í dag. Í tilkynningu segir að frestur til að skila óskuldbindandi tilboðum í félagið er til 2. maí. Í kjölfarið munu valdir fjárfestar fá aðgang að frekari upplýsingum um félagið áður en óskað verður eftir bindandi tilboðum og gengið til endanlegra samninga um kaup og sölu. Söluferlið er opið öllum fjárfestum sem uppfylla skilyrði um viðeigandi þekkingu og fjárhagslegan styrk, en gert er ráð fyrir að allt hlutafé í félaginu verði selt í einu lagi. Áhugasömum aðilum er bent á að hafa samband við Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka sem hefur umsjón með söluferlinu. Bankinn tók yfir rekstur fyrirtækisins árið 2010 og hefur það gengið í gegnum róttæka endurskipulagningu. Kostnaðaruppbygging fyrirtækisins hefur verið löguð að núverandi efnahagsástandi en framleiðslugeta þess getur engu að síður annað meðalári án þess að til mikilla fjárfestinga þurfi að koma. BM Vallá er eitt stærsta framleiðslufyrirtæki innan byggingariðnaðarins á Íslandi og er vörumerki þess sterkt. Fyrirtækið starfar á sviði steypu-, hellu-, eininga- og múrframleiðslu sem og vikurvinnslu. Þó að félagið hafi gengið í gegnum umfangsmiklar skipulagsbreytingar hefur verið staðið vörð um mikla sérfræðiþekkingu fyrirtækisins. BM Vallá er því í stakk búið til að vera áfram í fararbroddi á markaði og viðhalda sterkri ímynd varðandi vöru- og þjónustugæði. Á undanförnu ári hefur verið lögð áhersla á vöruþróun sem mun styrkja stöðu félagsins á Íslandi en þó sérstaklega útflutning þess.
Mest lesið B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Fleiri fréttir Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Sjá meira