Viðskipti innlent

Laun hækkuðu um 4,7%

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Laun á íslenskum vinnumarkaði hækkuðu um 4,7% milli áranna 2009 og 2010 samkvæmt ársmeðaltali vísitölu launa, sem Hagstofan greinir frá. Þá hækkuðu laun á almennum vinnumarkaði um 6,0% að meðaltali en laun opinberra starfsmanna um 1,9%.

Á almennum vinnumarkaði hækkuðu laun þjónustu-, sölu og afgreiðslufólks mest á milli ára eða um 7,2% en laun stjórnenda hækkuðu minnst eða um 5,1%. Á sama tímabili var hækkun launa eftir atvinnugreinum á bilinu 3,6% til 8,0%. Mest hækkuðu laun í samgöngum og flutningum en minnst í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×