Íslandsbanki kærir Capacent fyrir meint kennitöluflakk 24. mars 2011 09:44 Capacent
Íslandsbanki hefur formlega lagt fram kæru á hendur stjórnendum Capacent ehf. vegna viðskipta frá 15. september 2010 þegar eignir Capacent voru keyptar út úr félaginu, sem síðan var gefið upp til skipta. Þetta kemur fram í Viðskiptablaðinu í dag. Þar segir að skiptastjóri Capacent, Guðrún Helga Brynleifsdóttir, telur að eignirnar hafi verið seldar á undirverði úr félaginu og að þær hafi, a.m.k. að hluta, verið veðsettar kröfuhafa félagsins, Íslandsbanka. Forsvarsmenn Capacent, þar sem starfsmenn félagsins eiga nú um 60% hlut, hafa alfarið hafnað því að þeir hafi brotið lög er félag þeirra, sem þá hét CC 200 ehf., keypti eignir úr félaginu sem nú er í slitameðferð. Samkvæmt frétt Viðskiptablaðsins var kaupverðið um 90 milljónir króna. Um það hefur verið deilt hvort það var sanngjarnt, en ekkert verðmat lá til grundvallar er gengið var frá kaupunum. Forsvarsmenn Capacent ehf. fengu hins vegar sérfræðinga til þess að verðmeta það sem til grundvallar lá eftir að viðskiptin áttu sér stað. Samkvæmt því mati var verðmiðinn í takti við eignavirði. En eins og áður segir eru skiptastjóri GH1, sem áður var Capacent hf., og kröfuhafinn Íslandsbanki alls ekki sammála þessu. Í stuttu máli telja þau að forsvarsmenn Capacent hafi ólöglega flutt eignir yfir á nýja kennitölu skömmu áður en það var tekið til skipta.
Tengdar fréttir Skiptastjóri Capacent vill lögreglurannsókn Skiptastjóri félagsins GH1, sem áður hét Capacent, hefur farið fram á að efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra rannsaki kaup á rekstri Capacent á Íslandi. Þykir leika grunur á að veðsettar eignir hafi verið seldar án heimildar veðsala. Þessu vísa forsvarsmenn Capacent alfarið á bug og íhuga meiðyrðamál gegn skiptastjóranum. Félag í eigu starfsmanna keypti í september rekstur og vörumerki Capacent í kjölfar þess að ekki tókst að semja um niðurfellingu á erlendu láni sem hvíldi á fyrirtækinu. 4. mars 2011 05:00 Mest lesið Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Viðskipti innlent Bæta við sex nýjum Airbus-vélum Viðskipti innlent Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Viðskipti innlent María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Viðskipti innlent Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Viðskipti innlent Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur Blöskraði dekkjaverð á Íslandi og sparaði sér á þriðja hundrað þúsund Viðskipti innlent Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Viðskipti innlent Fyrsta apótek Víkur opnað Viðskipti innlent Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Sjá meira
Skiptastjóri Capacent vill lögreglurannsókn Skiptastjóri félagsins GH1, sem áður hét Capacent, hefur farið fram á að efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra rannsaki kaup á rekstri Capacent á Íslandi. Þykir leika grunur á að veðsettar eignir hafi verið seldar án heimildar veðsala. Þessu vísa forsvarsmenn Capacent alfarið á bug og íhuga meiðyrðamál gegn skiptastjóranum. Félag í eigu starfsmanna keypti í september rekstur og vörumerki Capacent í kjölfar þess að ekki tókst að semja um niðurfellingu á erlendu láni sem hvíldi á fyrirtækinu. 4. mars 2011 05:00