Banna Taco Bell auglýsingu 24. mars 2011 13:46 Íslenska auglýsingin er væntanlega þýðing á þessu slagorði Taco Bell í Bandaríkjunum.
Neytendastofa hefur bannað birtingu auglýsinga veitingahúsakeðjunnar Taco Bell með yfirskriftinni „Burt með brauðið". Í tilkynningu frá stofnuninni segir að borist hafi kvörtun frá Íslensk-ameríska vegna auglýsinganna þar sem þær væru ósanngjarnar gagnvart keppinautum Taco Bell og annarra sem hafi hagsmuni af sölu eða framleiðslu brauðs. „Þá væru þær villandi gagnvart neytendum þar sem brauðmagn í réttum Taco Bell hafi ekki breyst," segir ennfremur. Neytendastofa féllst á sjónarmiðin og segir að ayglýsingin sé ósanngjörn gagnvart neytendum og keppinautum Taco Bell. „Í niðurstöðum ákvörðunarinnar er um það fjallað að yfirskriftin „Burt með brauðið" hafi enga tengingu við efni auglýsingarinnar, hvort sem tortillur geti talist brauð eða ekki, þar sem þeir réttir sem auglýstir eru miðist við að osti og sósu sé skipt út fyrir Fiesta salsa,“ segir í ákvörðuninni. „Fullyrðingin sé því ósanngjörn gagnvart neytendum og keppinautum Taco Bell enda sé skírskotað til óviðkomandi mála. Auk þess sé neytendum talin trú um að brauðmagn réttanna hafi minnkað þegar svo er ekki og því sé auglýsingin villandi gagnvart neytendum og þeim veittar rangar upplýsingar um helstu einkenni vörunnar. Þá séu auglýsingarnar ósanngjarnar gagnvart keppinautum þar sem gefið sé í skyn að brauð sé almennt óhollt þrátt fyrir ráðleggingar t.d. Landlæknis og Lýðheilsustöðvar um að dagleg neysla grófs brauðs sé holl.“
Mest lesið Verðbólga eykst verulega Viðskipti innlent „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Neytendur Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Viðskipti innlent Hvetja neytendur til að vera á varðbergi eftir áramót Neytendur Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Viðskipti innlent Fleiri fréttir Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ Sjá meira