Hafa keypt Ölvisholt Brugghús Jón Hákon Halldórsson skrifar 30. mars 2011 22:45 Jón Gunnlaugsson verður framkvæmdastjóri og einn aðaleigenda nýja félagsins.
Gengið hefur verið frá kaupum á rekstri og eignum Ölvisholt Brugghúss af þrotabúi. Félagið sem kaupir reksturinn heitir Eignarhaldsfélagið Flóinn ehf. Að því standa Karl K. Karlsson, Eignarhaldsfélag Suðurlands, Jón E. Gunnlaugsson, Bjarni Einarsson og nokkrir minni fjárfestar. Í fréttatilkynningu vegna viðskiptanna segir að rekstur hafi verið í lágmarki í brugghúsinu undanfarna mánuði eftir að rekstur félagsins fór í þrot á síðasta ári og Landsbankinn yfirtók rekstur þess eftir algjöran forsendubrest í kjölfar bankahrunsins. Frá þeim tíma hafa fyrrum eigendur félagsins unnið að endurfjármögnun þess og fengið til liðs áðurtalda aðila. Karl K.Karlsson hefur lengi starfað með Ölvisholt Brugghúsi og séð um dreifingu á vörum þess á innanlandsmarkaði. Í fréttatilkynningunni segir jafnframt a Eignarhaldsfélag Suðurlands sé rekið af sveitarfélögum á Suðurlandi til fjárfestinga í fyrirtækjum á svæðinu og því sé ánægjulegt að sjá að heimamenn vilji sjá áframhaldandi rekstur á þeim grunni sem hafði verið lagður. Ölvisholt hefur frá byrjun lagt áherslu á útflutning og hefur selt vörur til Svíþjóðar, Kanada og Danmerkur. Vörumerki félagsins, Freyja, Skjálfti, Móri og Lava hafa tryggt sig í sessi á öllum mörkuðum og salan aukist jafnt og þétt frá byrjun. Stjórn félagsins verður skipuð eftirfarandi: Arnbjörn Ólafsson, fjármálastjóri Karl K. Karlsson Þorbjörn Jónsson, f.h. Eignarhaldsfélags Suðurlands Jón E. Gunnlaugsson, sem einnig verður framkvæmdastjóri félagsins Valgeir Valgeirsson verður áfram bruggmeistari Ölvisholts. Markmið Ölvisholts er að kynna bjór sem valkost með góðum mat á góðri stund og ekki síður að kynna fyrir fólki þann óendanlega fjölbreytileika sem bjórgerð býður uppá.
Mest lesið Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Viðskipti innlent Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Viðskipti innlent Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Kviku banka Viðskipti innlent Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Viðskipti innlent Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Viðskipti innlent Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Sjá meira