Að breyta doða í dug Vilmundur Jósefsson skrifar 9. júlí 2011 06:00 Undanfarin þrjú ár hefur fjárfesting á Íslandi dregist verulega saman og náði hún sögulegu lágmarki á síðasta ári. Undanfarna tvo áratugi hefur þetta hlutfall numið 20% af landsframleiðslu en var tæplega 13% árið 2010. Ekki eru horfur á því að þetta hlutfall hækki markvert á þessu ári. Blása þarf lífi í efnahaginnÁ síðustu árum hefur störfum fækkað verulega. Þegar umfang í bygginga- og mannvirkjagerð var sem mest störfuðu 18 þúsund manns í greininni en nú stefnir í að þar starfi einungis 4-6 þúsund manns. Fyrirtækjum hefur fækkað og þau farið minnkandi. Fátt bendir til að óbreyttu að þróunin sé að snúast við þannig að atvinnulausum fækki. Lítil og minnkandi fjárfesting er meginástæða þess að lítið sem ekkert er farið að horfa til betri vegar í efnahagslífi landsins. Það er ekki að ástæðulausu að litið er til fjárfestinga þegar ræddar eru leiðir til að blása lífi í efnahagslífið. Fjárfesting er í eðli sínu ekkert annað en að fé er lagt til hliðar í formi sparnaðar og því ætlað að skapa aukna framleiðslugetu í framtíðinni og þar með aukna verðmætasköpun og betri lífskjör til lengri tíma litið. Ótal rannsóknir sýna skýrt samband milli fjárfestinga og sparnaðar annars vegar og hagvaxtar hins vegar. Fögur fyrirheit sumarið 2009Það ríkti bjartsýni meðal þeirra sem skrifuðu undir stöðugleikasáttmálann fyrir tveimur árum um markmið og leiðir að endurreisn efnahagslífsins. Einn mikilvægur þáttur sáttmálans var að ríkisstjórnin myndi greiða götu þegar ákveðinna stórframkvæmda, vinna skipulega í samráði við atvinnulífið að úrvinnslu áforma um aðrar stórframkvæmdir og að ganga til samstarfs við lífeyrissjóði um að þeir fjármögnuðu stórar verklegar framkvæmdir m.a. til að flýta fyrir arðbærum samgönguframkvæmdum. Þáverandi samgönguráðherra lagði fram á Alþingi frumvarp sem heimilaði ráðherra að stofna opinbert hlutafélag sem hafi þann tilgang að standa að vegalagningu umhverfis höfuðborgarsvæðið, auk Vaðlaheiðargangna, og taka gjald af umferð um viðkomandi vegi. Lögin voru samþykkt samhljóða á Alþingi 28. júní 2010 og í framhaldinu hófst undirbúningur að stofnun félaganna og viðræður við lífeyrissjóði um fjármögnun þeirra. Þeim viðræðum var slitið í desember 2010 vegna ósamkomulags um vaxtakjör þótt lítið bæri á milli. Áform áréttuð vorið 2011Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 5. maí sl. í tengslum við gerð kjarasamninga var vilji stjórnvalda áréttaður. Þar segir m.a.: "Áfram verður unnið að útfærslu tillagna um vegaframkvæmdir á Suðvesturlandi og fjármögnun þeirra og er mikilvægt að samstaða náist um þau áform. Hér er um tugmilljarða framkvæmdir að ræða sem dreifast á nokkur ár, en fyrstu áfangar eru tilbúnir til útboðs. Stjórnvöld munu skipa starfshóp með fulltrúum SA, ASÍ, fjármálaráðuneyti og innanríkisráðuneyti er reyni til þrautar að finna útfærslur sem gera mögulegt að ráðast í umfangsmiklar samgönguframkvæmdir á Suðvesturlandi og eftir atvikum víðar, fjármagnaðar með sérstökum hætti. Niðurstaða verði fengin í þá vinnu fyrir lok maí.“ Þegar svo virðist sem að ekkert sé að vanbúnaði til að ganga frá stofnun félaganna, semja við lífeyrissjóði um fjármögnun og hefjast handa, þá kemur ráðherra samgöngumála og telur framgangi málsins allt til foráttu. Þrátt fyrir yfirlýsingar hagsmunaaðila um eindreginn vilja til að þetta þjóðþrifaverkefni geti orðið að veruleika þá situr ráðherrann við sinn keip og verkefnið er stopp. Það er sannarlega tímabært að hefja umræðu og stefnumótun um framtíðargjaldtöku af umferð. Rafræn innheimta notenda- eða notkunargjalda í gegnum gervihnött er sú framtíðarsýn sem við blasir. Eitt gjald kæmi í stað annarra gjalda, eins og olíugjalda og bensíngjalda. Tæknin er til staðar og innan Evrópusambandsins er t.d. umræða um að innleiða slíka gjaldtöku á þungaumferð, þannig að tekjur af þungaflutningum renni til einstakra landa í samræmi við notkun á vegum í hverju landi. Ísland hefur alla burði til að vera í fararbroddi þessarar þróunar sem m.a. myndi gefa fyrirtækjum í nýsköpun verðug verkefni til úrlausnar. Innviðir verði styrktirÞað er ekki einsdæmi að stjórnvöld ákveði að grípa til sérstaks átaks í styrkingu innviða eins og vegaframkvæmda þegar efnahagslífið skreppur saman og störfum fækkar. Þannig háttaði til þegar kreppti að í upphafi 10. áratugar síðustu aldar. Auk þess að skapa ný störf og efla hagvöxt snúast samgönguframkvæmdir um aukið öryggi á vegum. Nægir að nefna stórfellda fækkun alvarlegra slysa á Reykjanesbraut við tvöföldun hennar. Samkvæmt mati Sjóvár hf. árið 2006 var árlegur heildarkostnaður vegna slysa og óhappa á Suðurlandsvegi til Selfoss um 1 milljarður króna. Þar af var kostnaður tryggingafélaga og tjónvalda um 600 m.kr. og samfélagsins um 400 m.kr. Því verður ekki trúað að ríkisstjórnin ætli ekki að standa við nýlega yfirlýsingu sína um sérstakt átak í vegamálum líkt og unnið hefur verið að undanfarin tvö ár. Þau úrlausnarefni sem greiða þarf úr svo unnt sé að hefjast handa eru smávægileg í samanburði við þá þjóðarhagsmuni sem þetta átak svo sannarlega felur í sér. Í umræðunni undanfarna daga hefur enginn utan ráðherrans mælt gegn framkvæmdinni. Það væri sæmd fyrir ráðherra samgöngumála að snúa við blaði sínu, horfa á það jákvæða í málinu og hafa forgöngu um að hnýta lausa enda svo unnt verði að hefja framkvæmdir á næstu mánuðum. Það yrði öðrum hvatning til að ganga í hans fótspor, auka fjárfestingu og fjölga störfum, sem þjóðin þarfnast meira en flest annað. Með því má breyta doða í dug. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið „Akademísk sniðganga“: gaslýsingar og hnignun háskólasamfélagsins Birgir Finnsson Skoðun Metabolic Psychiatry: Ný nálgun í geðlækningum Vigdís M. Jónsdóttir Skoðun Fráleit túlkun á fornum texta breytir ekki staðreyndum Ómar Torfason Skoðun Viltu skilja bílinn eftir heima? Sara Björg Sigurðardóttir Skoðun Hvaða framtíð bíður barna okkar árið 2050? Hafdís Hanna Ægisdóttir Skoðun Við lifum ekki á tíma fasisma Hjörvar Sigurðsson Skoðun Betri strætó strax í dag Dóra Björt Guðjónsdóttir Skoðun Bílastæðavandi í Reykjavík – tími til aðgerða Einar Sveinbjörn Guðmundsson Skoðun Framtíð villta laxins hangir á bláþræði Elvar Örn Friðriksson Skoðun Ætlar ríkið að stuðla að aukinni tóbaksneyslu á Íslandi? Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Réttur barna versus veruleiki Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Framtíð villta laxins hangir á bláþræði Elvar Örn Friðriksson skrifar Skoðun „Akademísk sniðganga“: gaslýsingar og hnignun háskólasamfélagsins Birgir Finnsson skrifar Skoðun Við lifum ekki á tíma fasisma Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Fíknisjúkdómur – samfélagsleg ábyrgð sem við þurfum að takast á við Halldór Þór Svavarsson skrifar Skoðun Ætlar ríkið að stuðla að aukinni tóbaksneyslu á Íslandi? Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Bílastæðavandi í Reykjavík – tími til aðgerða Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Þakkir til Sivjar Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Fráleit túlkun á fornum texta breytir ekki staðreyndum Ómar Torfason skrifar Skoðun Betri strætó strax í dag Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Viltu skilja bílinn eftir heima? Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvaða framtíð bíður barna okkar árið 2050? Hafdís Hanna Ægisdóttir skrifar Skoðun Metabolic Psychiatry: Ný nálgun í geðlækningum Vigdís M. Jónsdóttir skrifar Skoðun Af hverju skiptir vökvagjöf okkur svona miklu máli? Hanna Birna Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kolfellur á öllum prófum. Er bólan að bresta? Brynjólfur Þorvarðsson skrifar Skoðun Kerfisbundið afnám réttinda kvenna — Staða afganskra kvenna 4 árum eftir valdatöku talíbana Ólafur Elínarson,Anna Steinsen skrifar Skoðun Hér er það sem Ágúst sagði ykkur ekki Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Framtíð íslensks menntakerfis – lærum af Buffalo og leiðandi háskólum heims Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Öryggismenning – hjartað í ábyrgri ferðaþjónustu Ólína Laxdal,Sólveig Nikulásdóttir skrifar Skoðun Nýsamþykkt aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum – aldrei mikilvægari en nú Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Falið heimsveldi Al Thani-fjölskyldunnar Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Við styðjum Ingólf Gíslason og annað starfsfólk í akademískri sniðgöngu Elía Hörpu og Önundarbur,Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir,Íris Ellenberger,Sjöfn Asare skrifar Skoðun Hið landlæga fúsk Helga Sigrún Harðardóttir skrifar Skoðun Þetta þarftu að vita: 12 atriði Ágúst Ólafur Ágústsson skrifar Skoðun Ég frétti af konu Gunnhildur Sveinsdóttir skrifar Skoðun Rangfærslur ESB-sinna leiðréttar Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Eineltið endaði með örkumlun Davíð Bergmann skrifar Skoðun Akademísk kurteisi á tímum þjóðarmorðs Finnur Ulf Dellsén skrifar Skoðun Við megum ekki tapa leiknum utan vallar Eysteinn Pétur Lárusson skrifar Skoðun Börnin heyra bara sprengjugnýinn Hjálmtýr Heiðdal skrifar Sjá meira
Skoðun Fíknisjúkdómur – samfélagsleg ábyrgð sem við þurfum að takast á við Halldór Þór Svavarsson skrifar
Skoðun Kerfisbundið afnám réttinda kvenna — Staða afganskra kvenna 4 árum eftir valdatöku talíbana Ólafur Elínarson,Anna Steinsen skrifar
Skoðun Framtíð íslensks menntakerfis – lærum af Buffalo og leiðandi háskólum heims Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Öryggismenning – hjartað í ábyrgri ferðaþjónustu Ólína Laxdal,Sólveig Nikulásdóttir skrifar
Skoðun Nýsamþykkt aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum – aldrei mikilvægari en nú Halla Þorvaldsdóttir skrifar
Skoðun Við styðjum Ingólf Gíslason og annað starfsfólk í akademískri sniðgöngu Elía Hörpu og Önundarbur,Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir,Íris Ellenberger,Sjöfn Asare skrifar