Afnám gjaldeyrishafta mikilvægt skref - evran verði tekin upp sem fyrst 21. júní 2011 12:01
Afnám gjaldeyrishafta er veigamikil forsenda þess að íslensk fyrirtæki komist aftur á alþjóðlega fjármálamarkaði. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í skýrslu efnahags- og framfarastofnunarinnar OECD um Ísland. Skýrslur af þessu tagi eru gefnar út um einstök ríki með reglulegu millibili, en að þessu sinni kveður við nokkuð svipaðan tón og heyrst hefur frá öðrum alþjóðastofnunum: Að Ísland sé nú á réttri leið við að leysa úr fjármálakreppunni, en enn séu þó ljón í veginum. Það sem er kannski sérstakt við skýrslur OECD er hinn mikli fjöldi ráðlegginga sem stjórnvöldum er gefinn til að eiga við vandamálin framundan. Til dæmis víkur stofnunin að gjaldeyrishöftunum, og segir afnám þeirra veigamikla forsendu þess að íslenskt fyrirtæki komist aftur á alþjóðlega fjármálamarkaði. Því lengur sem höftin verði við lýði, því meiri óhagkvæmni í ráðstöfun fjármuna leiði þau til, minni ávöxtunar og meiri brenglunar í ákvarðanatöku. Um leið og takist að ná tökum á óstöðugum aflandskrónueignum útlendinga eigi að afnema höftin. Þá eigi Íslendingar að stefna að upptöku evru sem fyrst, en krónan sé minnsti sjálfstæði gjaldmiðill heims.
Tengdar fréttir OECD mælir með óbreyttu kvótakerfi Efnahags- og framfarastofnunin OECD mælir með að ekki verði hróflað við núverandi kvótakerfi hér á landi, heldur verði auðlindagjaldið hækkað. Það sé vænlegra til að tryggja að fiskveiðikerfið verði áfram arðbært, skilvirkt og sjálfbært, fremur en að stjórnvöld láti undan þrýstingi almennings um grundvallarbreytingar á stjórnun fiskveiða hér við land, breytinganna vegna. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu stofnunarinnar sem fjallar almennt um landshagi og framtíðarmöguleika hér á landi. Kynning á skýrslunni hófst nú klukkan tíu í innanríkisráðuneytinu. 21. júní 2011 09:57 Mest lesið Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Atvinnulíf Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Lokanir, lægðir og samviskubit Atvinnulíf „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Viðskipti innlent Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Viðskipti innlent Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Sjá meira
OECD mælir með óbreyttu kvótakerfi Efnahags- og framfarastofnunin OECD mælir með að ekki verði hróflað við núverandi kvótakerfi hér á landi, heldur verði auðlindagjaldið hækkað. Það sé vænlegra til að tryggja að fiskveiðikerfið verði áfram arðbært, skilvirkt og sjálfbært, fremur en að stjórnvöld láti undan þrýstingi almennings um grundvallarbreytingar á stjórnun fiskveiða hér við land, breytinganna vegna. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu stofnunarinnar sem fjallar almennt um landshagi og framtíðarmöguleika hér á landi. Kynning á skýrslunni hófst nú klukkan tíu í innanríkisráðuneytinu. 21. júní 2011 09:57