easyJet til Íslands: Um 11 þúsund krónur báðar leiðir 9. nóvember 2011 10:12
Breska lággjaldaflugfélagið easyJet hefur ákveðið að hefja áætlunarflug til Íslands frá Bretlandi. Flogið verður þrisvar í viku til Keflavíkur frá Lutonflugvelli í nágrenni London. Ferðirnar hefjast 27. mars á næsta ári en miðarnir fara í sölu á morgun. Í tilkynningu frá easy Jet segir að miðaverðið verði 6100 krónur aðra leiðina en 10.900 krónur báðar leiðir. Paul Simmons forstjóri easyJet í Bretlandi segir að Ísland sé ákaflega spennandi valkostur. „easyJet finnst mjög spennandi að geta boðið upp á ferðir milli London og Íslands" segir Paul Simmons, framkvæmdastjóri easyJet á Bretlandsmarkaði. „Við gerum ráð fyrir að leiðin verði áhugaverð fyrir farþega af ólíkum toga. Hvort sem þeir eru í viðskiptaerindum, að leita sér afþreyingar í borgarferðum eða spennandi áfangastöðum sem víkka sjóndeildarhringinn." Frá Luton flýgur easyJet til 36 annarra áfangastaða í Evrópu og Miðausturlanda og easyJet er einnig með starfsemi á Gatwick og Stanstead og flýgur þaðan til ríflega 120 áfangastaða. Óhætt er að segja að með tilkomu easyJet fjölgi valkostum þeirra sem vilja ferðast á viðráðanlegu verði. Íslendingum býðst nú nýr heimur ódýrra valkosta allt frá Tenerife til Tallin og frá Belfast til Sharm El Sheik. Með tilkomu Íslands sem áfangastaðar flýgur easyJet til 30 landa og er eitt stærsta flugfélag í Evrópu. Flugvélafloti easyJet telur meira en 200 flugvélar sem flytja árlega yfir 55 milljónir farþega á 580 flugleiðum.
Mest lesið Taka umdeilda samninga til skoðunar Viðskipti innlent Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Viðskipti erlent TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Viðskipti innlent Úrelt kerfi: „Erum föst í því að allir verji sitt svæði og sitt fjármagn“ Atvinnulíf Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Viðskipti erlent Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Viðskipti innlent Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Samstarf Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Viðskipti innlent Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Samstarf Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Sjá meira