Viðskipti innlent

easyJet til Íslands: Um 11 þúsund krónur báðar leiðir

Breska lággjaldaflugfélagið easyJet hefur ákveðið að hefja áætlunarflug til Íslands frá Bretlandi. Flogið verður þrisvar í viku til Keflavíkur frá Lutonflugvelli í nágrenni London. Ferðirnar hefjast 27. mars á næsta ári en miðarnir fara í sölu á morgun. Í tilkynningu frá easy Jet segir að miðaverðið verði 6100 krónur aðra leiðina en 10.900 krónur báðar leiðir.

Paul Simmons forstjóri easyJet í Bretlandi segir að Ísland sé ákaflega spennandi valkostur. „easyJet finnst mjög spennandi að geta boðið upp á ferðir milli London og Íslands" segir Paul Simmons, framkvæmdastjóri easyJet á Bretlandsmarkaði. „Við gerum ráð fyrir að leiðin verði áhugaverð fyrir farþega af ólíkum toga. Hvort sem þeir eru í viðskiptaerindum, að leita sér afþreyingar í borgarferðum eða spennandi áfangastöðum sem víkka sjóndeildarhringinn."

Frá Luton flýgur easyJet til 36 annarra áfangastaða í Evrópu og Miðausturlanda og easyJet er einnig með starfsemi á Gatwick og Stanstead og flýgur þaðan til ríflega 120 áfangastaða. Óhætt er að segja að með tilkomu easyJet fjölgi valkostum þeirra sem vilja ferðast á viðráðanlegu verði. Íslendingum býðst nú nýr heimur ódýrra valkosta allt frá Tenerife til Tallin og frá Belfast til Sharm El Sheik.

Með tilkomu Íslands sem áfangastaðar flýgur easyJet til 30 landa og er eitt stærsta flugfélag í Evrópu. Flugvélafloti easyJet telur meira en 200 flugvélar sem flytja árlega yfir 55 milljónir farþega á 580 flugleiðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×