Viðskipti innlent

Fimmtíu og sjö sagt upp hjá Arion

Myndir/Pjetur
Fimmtíu og sjö starfsmönnum Arion banka var í dag sagt upp störfum. Í tilkynningu frá bankanum segir að þrjátíu og átta þeirra séu úr höfuðstöðvum bankans en nítján á öðrum starfsstöðvum. Vinnumálastofnun hefur verið tilkynnt um uppsagnirnar en bankinn segir þær vera lið í hagræðingaferli sem staðið hafi yfir allt frá stofnun bankans eftir hrun. Forsvarsmenn bankans segjast harma aðgerðirnar en að ljóst megi vera að rekstur íslenska fjármálakerfisins sé of kostnaðarsamur. Það eigi einnig við um Arion banka.

„Það er erfitt skref að þurfa að grípa til uppsagna en nauðsynlegt til að bregðast við aðstæðum. Ekki eru fyrirhugaðar frekari aðgerðir af þessu tagi," segir ennfremur í tilkynningunni. „Arion banki stendur frammi fyrir ákveðnum kaflaskilum í starfsemi sinni. Annars vegar líður að því að vinnu við úrlausnarmál ljúki. Hins vegar hefur dregið hratt úr vinnu tengdri endurskipulagningu í ytra umhverfi sem og við rannsókn og uppgjör af ýmsu tagi er tengjast fortíðinni."

„Almennt má ljóst vera að rekstur íslenska fjármálakerfisins er of kostnaðarsamur. Fjöldi starfsfólks hjá fjármálafyrirtækjum hér á landi er of mikill miðað við umfang kerfisins. Sú staðreynd á einnig við um Arion banka. Að auki eru ný verkefni, s.s. eftirspurn eftir nýjum lánum og fjárfestingar í lægð sem stendur," segir ennfremur.

Þá er því bætt við að þrátt fyrir að afkoma bankans hafi verið viðunandi síðastliðin misseri sé stór hluti þess hagnaðar tilkominn vegna endurmats á lánabók á fyrirtækjasviði bankans. „Arðsemi af reglulegri starfssemi er ekki ásættanleg til lengri tíma litið. Arion banki hefur styrkt stöðu sína á markaði frá stofnun bankans en engu að síður eru aðgerðirnar nú nauðsynlegar til að treysta stöðu bankans og samkeppnishæfni til framtíðar," segir að lokum um leið og þess er getið að sjórnendum þyki þungbært að hafa þurft að grípa til aðgerðanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×