Landsbankinn hagnaðist um 24,4 milljarða 14. september 2011 17:49 Myndin er af blaðamannafundi í dag þar sem bankinn tilkynnti afkomu sína. Mynd/Pjetur
Hagnaður Landsbankans var 24,4 milljarðar króna eftir skatta á fyrri hluta ársins. Steinþór Pálsson, bankastjóri, segir stærstan hluta hagnaðarins skýrast af gengisbreytingum á hlutafé og sölu eigna. Hagnaður vegna hlutabréfa í eigu Horns hf., sem er dótturfélag bankans, nam til að mynda 9 milljörðum króna. Bankinn sér hins vegar fyrir að tap verði af hlutabréfum á þriðja ársfjórðungi. Hagnaður bankans af aflagðri starfsemi (discontinued operations) var 4,7 milljarðar króna. Með því er átt við þann hagnað sem hlýst þegar bankinn leggur niður hluta af starfsemi sinni og selur hann. Þar vegur þyngst salan á Vestia og Icelandic Group sem skilaði 4,1 milljarðs hagnaði. Hagnaður af reglulegri starfsemi bankans er um 10,7 milljarðar króna. Hins vegar rýrnaði virði útlánasafna bankans, jafnt útlánasafni til einstaklinga (um 9 milljarða) og útlánasafni til fyrirtækja (um 19 milljarða). Rýrnunina má rekja til úrræða bankans við skuldavanda heimila og fyrirtækja í kjölfar hrunsins. Eigið fé bankans er nú 208 milljarðar króna, í samanburði við 167 milljarða á sama tíma á síðasta ári. Eiginfjárhlutfall er 22,4% Steinþór bankastjóri segir arðsemi bankans af kjarnastarfsemi viðunandi. „Það skiptir miklu að rekstur Landsbankans gangi vel svo hægt sé að takast á við þau verkefni sem framundan eru í erfiðu umhverfi, m.a. endurreisn íslensks atvinnulífs," bætir hann við í lokin. Í töflunni hér að neðan má samanburð á afkomu bankans milli ára.1H 20111H 20102010Arðsemi eigin fjár á ársgrundvelli24,9%11,6%17,3%Hagnaður eftir skatta24,4 milljarðar9,4 milljarðar27,2 milljarðarHagnaður af hækkun hlutabréfa9,1 milljarður-1 milljón6,3 milljarðarTekjur af aflagðri starfsemi4,7 milljarðar2,8 milljarðar2,8 milljarðarGengishagnaður-139 milljónir9,1 milljarður14,6 milljarðarVaxtamunur af meðalstöðu heildareigna3,1%2,6%2,3%Eigið fé208 milljarðar167 milljarðar185 milljarðarEiginfjárhlutfall22,4%16,7%19,5%Heildareignir1.126 milljarðar1.087 milljarðar1.081 milljarðurRekstrarkostnaður10,8 milljarðar9 milljarðar18,5 milljarðar
Mest lesið Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum Viðskipti innlent „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Viðskipti innlent Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés Viðskipti erlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Fleiri fréttir Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Sjá meira