Gengissigið virðist hafa stöðvast 6. september 2011 12:07
Sig á gengi krónunnar sem staðið hefur yfir frá áramótum virðist nú hafa stöðvast, en krónan hefur styrkst lítið eitt síðustu sex vikurnar. Yfirmaður greiningardeildar býst við að gengið haldist nú stöðugt. Gengi krónunnar veiktist nánast samfellt frá áramótum og þar til um miðjan júlí, en það féll um sjö og hálft prósent gagnvart evru og um sex og hálft prósent gagnvart þeim myntum sem Íslendingar eiga helst utanríkisviðskipti í á þeim tíma. Þá virðist þessi þróun hafa stöðvast, en síðan í júlí hefur gengið tekið að styrkjast lítið en greinilega, en styrkingin gagnvart þessum helstu viðskiptamyntum þjóðarinnar nemur rúmlega einu og hálfu prósenti samkvæmt skráningu Seðlabankans. Sig krónunnar virðist því tvímælalaust hafa stöðvast á síðustu sex til sjö vikum eða svo. Ingólfur Bender, yfirmaður greiningar Íslandsbanka, segir erfitt að segja nákvæmlega til um orsakir þessa en nefnir að hugsanlega hafi gjaldeyristekjur skilað sér til landsins að auknu leyti vegna ferðaþjónustunnar, sem valdi því að krónan styrkist. Þá skipti aðstæður á alþjóðlegum mörkuðum máli. Ingólfur segir að hagstæður vöruskiptajöfnuður hjálpi krónunni sömuleiðis, auk þess sem hærri stýrivextir gætu haft áhrif til styrkingar, þó það sé að miklu minna leyti en fyrir hrun vegna gjaldeyrishaftanna. Hann segir erfitt að segja fyrir um það hvort frekari styrkingar sé að vænta, en sveiflur í krónunni hafa verið minni en almennt á gjaldeyrismörkuðum.
Mest lesið Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira