Passat bíll ársins 2012 6. september 2011 20:12 Marinó Björnsson tók á móti verðlaununum fyrir hönd Heklu, Sigurður Bragi Guðmundsson afhenti verðlaunin.
Bandalag íslenskra bílablaðamanna, BÍBB, tilkynnti um val á bíl ársins 2012 í húsakynnum Blaðamannafélags Íslands föstudaginn 2. sept 2011. Að þessu sinni var það Volkswagen Passat í metanútfærslu sem hlaut verðlaunin „Bíll ársins 2012". Volkswagen Passat fær því verðlaunagripinn Stálstýrið 2012. Þetta kemur fram í tilkynningu. Bílar sem gjaldgengir voru í keppnina að þessu sinni voru bílar sem höfðu komið á markað hér á landi frá ágúst 2010. Dómnefnd tók tillit til aksturseiginleika, afkastagetu, eldsneytisnotkunar, visthæfi, öryggisbúnaðar, útlits og hönnunar bílanna og endursöluvirðis svo nokkuð sé nefnt. „Í Volkswagen Passat er hugsað um hvert smáatriði þegar kemur að hönnun, þægindum og öryggi. Passat er ríkulega búinn staðalbúnaði og er einstaklega rúmgóður og þægilegur í akstri. Einnig er í boði fjölbreytt úrval aukahluta og tækni sem einkennt hefur Volkswagen sem nýjungagjarnan framleiðanda. Fimm stjörnu eiknunn VW Passat í árekrarprófun Euro Ncap staðfestir þá stefnu Volkswagen að öryggið sé ávallt í forgangi," segir í tilkynningu. „Volkswagen Passat EcoFuel notar metangas sem aðal orkugjafa en einnig er hann með 31 lítra bensíntak. Hámarksdrægni á metangasi er um 450 km og 430 km á bensíninu. Þannig er hægt að aka 880 km að hámarki án þess að fylla á eldsneytið sem er vel ríflega vegalengdin frá Reykjavík til Akureyrar og til baka. Metangas er unnið úr lífrænum úrgangi á Íslandi og nær allt að 98% hreinleika, sem gerir það að einum umhverfisvænasta orkukostinum. Metangas er mun ódýrara eldsneyti heldur en bensín og dísil. Árlegur sparnaður getur numið um 100.000 krónum m.v. 15.000 km akstur á ári. Einnig fá metanbílar frítt í stæði í Reykjavík þannig að ávinningurinn er margvíslegur," segir ennfremur í tilkynningunni. Úrslit í vali á bíl ársins 2012 voru eftirfarandi: Í flokki smærri fólksbíla sigraði Audi A1. Í flokki vistvænna bíla sigraði Volkswagen Passat EcoFuel. Í flokki stærri fólksbíla sigraði Volvo S60 Bíll ársins 2012: Volkswagen Passat EcoFuel
Mest lesið Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Viðskipti innlent Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Viðskipti innlent Tekur við sem forstjóri S4S Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Atvinnulíf Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Sjá meira