Fékk 10 milljónir gefins frá Búnaðarbankanum Hafsteinn G. Hauksson skrifar 8. september 2011 19:01
Viðskiptavinur Búnaðarbankans fékk tæpar tíu milljónir króna ofgreiddar úr fjárfestingarsjóði fyrir mistök. Viðskiptavinurinn var ekki krafinn um endurgreiðslu fjárhæðarinnar, en tapið var fyrst gjaldfært í bókum Arion banka á þessu ári. Hluti af uppgjöri banka er að bókfæra tap vegna rekstraráhættu, en þar er átt við tap vegna mistaka starfsmanna, villna í tölvukerfum eða svika svo fátt eitt sé nefnt. Í nýju árshlutauppgjöri Arion banka er tap upp á rúmar 32 milljónir bókfært vegna þessa fyrstu sex mánuði ársins, en langstærsti einstaki gjaldaliðurinn hljóðar upp á 9,6 milljónir. Samkvæmt upplýsingum frá bankanum er það vegna atviks sem átti sér stað í Búnaðarbankanum árið 2002, en þá fékk viðskiptavinur bankans upphæðina ofgreidda út úr fjárfestingarsjóði fyrir mistök. Málið komst upp þegar Kaupþing tók sjóði Búnaðarbankans yfir árið 2004, en þá töldu sérfræðingar bankans að ekki væri ráðlegt að sækja málið, og því má segja að viðskiptavinurinn hafi fengið ofgreiðslu upp á tæpar tíu milljónir að gjöf frá Búnaðarbankanum. Tapið var fyrst bókfært í nýju árshlutauppgjöri Arion banka, en það var eitt þeirra mála sem endanlega var gert upp þegar slitið var á milli Arion banka og Kaupþings þann 30. júní síðastliðinn.
Mest lesið Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Viðskipti innlent Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Viðskipti innlent Tekur við sem forstjóri S4S Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Atvinnulíf Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Sjá meira