Viðskipti innlent

Færsla fjárveitinga á milli ára heimiluð á Akureyri

Á myndinni eru, talið frá vinstri: Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri, Sigurveig Bergsteinsdóttir, formaður skólanefndar Akureyrarbæjar, Gunnar Gíslason, fræðslustjóri, Hrafnhildur Sigurðardóttir, leikskólafulltrúi, Inda Björk Gunnarsdóttir, formaður félagsmálaráðs, Guðrún Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar, Soffía Lárusdóttir, framkvæmdastjóri búsetudeildar, og Oddur Helgi Halldórsson, formaður bæjarráðs Akureyrar.

Bæjarráð Akureyrar hefur heimilað færslu fjárveitinga á milli ára í málaflokkum félagsþjónustu og fræðslu- og uppeldismála. Í tilkynningu frá bænum segir að góður rekstur á síðasta ári gefi svigrúm til að færa rekstrarafgang þessara málaflokka yfir á núverandi fjárhagsár og nema upphæðirnar 12 milljónum króna til fjölskyldu- og búsetudeildar og 10 milljónum króna til skóladeildar.

„Í 7. kafla um fjárhagsáætlunarferli Akureyrarbæjar er fjallað um færslu fjárveitinga á milli ára. Þar segir að ef rekstrarútgjöld stofnunar séu innan fjárhagsáætlunar geti forstöðumaður óskað eftir því við bæjarráð að rekstrarafgangur ársins af óbundnum liðum verði fluttur á milli ára,“ segir ennfremur en bent á að þetta sé háð því skilyrði að viðkomandi fagnefnd og embættismaður hafi staðfest að þjónustu hafi verið sinnt í samræmi við starfsáætlun og að rekstrarafgangur sé vegna hagræðingar, sparnaðar eða flutnings verkefna á milli fjárhagsára.

Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri, afhenti deildarstjórum skóladeildar og fjölskyldu- og búsetudeildar fjármunina formlega í dag, samtals 22 milljónir króna sem verða færðar yfir á núverandi fjárhagsár.

„Við það tækifæri sagði Eiríkur Björn að þótt aðeins væri um að ræða lítið brot af heildarrekstrarútgjöldum þessara málaflokka þá væri færsla þeirra á milli ára hvort tveggja í senn, hvatning til starfsfólks bæjarins um að gera enn betur og um leið þakklætisvottur fyrir vel unnin störf,“ segir að lokum.

Fleiri fréttir

Sjá meira

×