Lífeyrissjóðirnir töpuðu 4,4 milljörðum á N1 12. ágúst 2011 20:45
Íslensku lífeyrissjóðirnir töpuðu um 4,4 milljörðum króna þegar gengið var frá samningum við kröfuhafa olíufélagsins N1. Það kemur í ljós þegar félagið verður selt, hversu mikið tap Íslandsbanka og Arionbanka verður. Þetta kemur fram á vefsíðu RUV. Þar segir að heildarkröfur í N1 samstæðuna, það er að segja olíufélagið N1, móðurfélagið BNT og fasteignafélagið Umtak, námu um 53 milljörðum króna þegar gengið var frá samningum við lánardrottna í lok júní. Þá var meirihluta skuldanna breytt í hlutafé, og félagið tekið yfir af kröfuhöfum. Milljarðar króna voru hins vegar afskrifaðar í þessum gjörningi. Lífeyrissjóðirnir áttu stærstan hluta af skuldabréfum í N1, sem nam um 14% af heildarkröfum í samstæðuna. Andvirði skuldabréfanna var um 7,4 milljarðar króna. Samkvæmt samningunum var um þremur milljörðum króna breytt í hlutafé, en afgangurinn, um 4,4 milljarðar króna, afskrifaður. Arion banki átti stærstu kröfuna, upp á 25 milljarða króna í Umtaki, fasteignafélagi N1. Sú krafa nam um 40% af heildarkröfum í samstæðuna. Samkvæmt samningnum fær Arion banki um 39% hlut í N1, auk rúmra fimm milljarða í formi skuldabréfs. Það kemur svo í ljós þegar félagið verður selt, hversu mikið bankinn þarf að afskrifa. Talið er að virði N1 sé í dag á bilinu 20 til 25 milljarðar króna. Miðað við það er líklegt að Arion þurfi að afskrifa á bilinu 10 til 12 milljarða króna. Þó má gera ráð fyrir því að nú þegar hafi verið tekið tillit til þess í bókum bankans, að því er segir í frétt RUV.
Mest lesið Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Spá aukinni verðbólgu í apríl Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira