Viðskipti innlent

Málefni fatlaðra setja fjármál borgarinnar í óvissu

Oddvitar meirihlutans, Dagur B. Eggertsson og Jón Gnarr.
Oddvitar meirihlutans, Dagur B. Eggertsson og Jón Gnarr. Mynd/GVA
Flutningur á málefnum fatlaðra frá ríki til borgar og óvissa um fjármögnun málaflokksins veldur drætti á framlagningu þriggja ára fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar. Borgaryfirvöld vonast til þess að hægt verði að ljúka gerð áætlunarinnar í byrjun hausts. Þetta kemur fram í tilkynningu frá borginni en fyrr í dag óskuðu fulltrúar Sjálfstæðisflokks og VG eftir því að borgarstjórn yrði kölluð saman til aukafundar vegna vanskila á áætlunininni. Fulltrúarnir segja að samkvæmt lögum hafi átt að leggja slíka áætlun fram fyrir fimm mánuðum og að vinnubrögð meirihlutans væru því óábyrg og algjörlega óviðunandi.

Þegar fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar vegna ársins 2011 var samþykkt í desember 2010 var ekki búið að staðfesta flutning á málefnum fatlaðra til sveitarfélaga af hálfu Alþingis, að því er fram kemur í tilkynningu borgarinnar. Þá lá heldur ekki fyrir heildstæð tekju og útgjaldaáætlun með nákvæmri skiptingu á milli sveitarfélaga og því var alls óvíst hvernig fjármögnun yrði háttað á árinu 2011. Fullbúin útgjaldaáætlun varðandi málaflokkinn liggur nú fyrir, en ennþá er unnið að samkomulagi um fjármögnun.

„Gert var ráð fyrir að fljótlega upp úr áramótum yrði unnt að ganga frá endurskoðun á fjárhagsáætlun 2011 með tilliti til málefna fatlaðra. Í kjölfarið var ráðgert að þriggja ára áætlun yrði undirbúin. Málið reyndist vera styttra á veg komið hjá ráðuneytum en áætlað var og enn liggja ekki fyrir niðurstöður um fjármögnun," segir í tilkynningu Reykjavíkurborgar.

Enn standa yfir viðræður um málið á milli fulltrúa Sambands íslenskra sveitarfélaga, innanríkisráðherra og fjármálaráðherra. Borgaryfirvöld vonast til þess að viðræðurnar muni leiða til þess að ásættanleg lausn finnist og hægt verði að ljúka við gerð þriggja ára áætlunar í byrjun hausts.


Tengdar fréttir

Óska eftir aukafundi í borgarstjórn

Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokks og VG vilja að borgarstjórn komi saman til aukafundar vegna vanskila á þriggja ára áætlun um rekstur, framkvæmdir og fjármál borgarinnar. Þeir lögðu fram ósk þess efnis á fundi borgarráðs í morgun. Fulltrúarnir segja að samkvæmt lögum hefði borgarstjóri átt að leggja slíka áætlun fram um miðjan febrúar eða fyrir fimm mánuðum. Ennfremur segja þeir vinnubrögð meirihlutans óvönduð og óábyrg og algjörlega óviðunandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×