Spáir því að verðbólgan verði 4,9% í júlí 15. júlí 2011 11:06
Greining Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs (VNV) verði óbreytt í júlí frá fyrri mánuði. Gangi spáin eftir eykst 12 mánaða verðbólga úr 4,2% í 4,9% í júlímánuði. Hagstofan birtir VNV fyrir júlí kl.9 þann 25. júlí næstkomandi. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningarinnar. Þar segir að í mælingu júlímánaðar muni vegast á lækkunaráhrif vegna sumarútsala og hækkunaráhrif vegna veikingar krónu, hækkunar launa á vinnumarkaði og verðhækkunar á íbúðamarkaði. „Sumarútsölur eru komnar í fullan gang og gerum við ráð fyrir nærri 10% lækkun á fata- og skóverði í júlí vegna þeirra (-0,5% áhrif í VNV). Útsölur hafa einnig nokkur lækkunaráhrif í ýmsum öðrum liðum varanlegra og hálfvaranlegra neysluvara," segir í Morgunkorninu. „Á móti þessu kemur að áhrif af kjarasamningunum sem gengu í gildi í júníbyrjun eru nú farin að koma fram, til að mynda í u.þ.b. 5% hækkun á mjólkurvörum sem tilkynnt var um fyrir síðustu mánaðamót. Þá heldur verð innfluttra vara væntanlega áfram að þokast upp á við vegna veikingar krónu undanfarna mánuði, en frá áramótum hefur krónan veikst um ríflega 5% gagnvart körfu helstu viðskiptamynta. Verðþrýstingur vegna hækkunar á hrávöruverði erlendis fer hins vegar minnkandi, þar sem verð ýmissa landbúnaðarvara hefur lækkað nokkuð á heimsmarkaði undanfarna mánuði mikla hækkun frá miðju síðasta ári til loka febrúar síðastliðins. Lítið lát virðist á verðhækkun á íbúðamarkaði, og gerum við ráð fyrir að áhrif hennar í júlí verði til 0,15% hækkunar á VNV. Þá teljum við að hækkun á ýmsum liðum sem tengjast ferðum og flutningum, svo sem eldsneytisverði og veggjöldum um Hvalfjarðargöng, vegi til 0,1% hækkunar á VNV." Þá segir að verðbólguhorfur fyrir yfirstandandi ár séu nú mun lakari en útlit var fyrir í upphafi árs. „Við gerum ráð fyrir að VNV hækki talsvert fram til loka 3. ársfjórðungs. Þannig spáum við samtals 1,3% hækkun vísitölunnar í ágúst og september, þegar útsöluáhrif ganga til baka og áhrif kjarasamninga koma enn frekar fram," segir í Morgunkorninu. „Verðbólga mun þá mælast 6% í september, gangi spá okkar eftir, og verða á svipuðu róli fram yfir áramót. Í kjölfarið gerum við ráð fyrir að aftur dragi úr verðbólgunni og að hún mælist tæplega 4% yfir árið 2012. Ekki er hins vegar útlit fyrir að verðbólga verði við 2,5% markmið Seðlabankans, eins og sett er sem skilyrði fyrir áframhaldandi gildi kjarasamninga eftir þarnæstu áramót, nema krónan styrkist talsvert og/eða orku- og hrávöruverð lækki verulega að nýju."
Mest lesið Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Lokanir, lægðir og samviskubit Atvinnulíf Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Viðskipti innlent Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Viðskipti innlent Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Sjá meira