Skuldir sjávarútvegsins svipaðar og 2005 4. júlí 2011 09:39
Skuldir sjávarútvegsins mældar í evrum eru nú svipaðar og þær voru árið 2005 en þær nema rúmlega 3 milljörðum evra eða rúmlega 500 milljörðum kr. Þetta kemur fram í Markaðspunktum greiningar Arion banka þar sem rætt er um skuldastöðu sjávarútvegsins með tilliti til þeirra breytinga sem boðaðar hafa verið á núverandi kvótakerfi. Greiningin telur að stærri sjávarútvegsfyrirtækin séu mun betur í stakk búnar til að mæta þessum breytingum en þau smærri og meðalstóru. „Aukin samþjöppun í sjávarútvegi hefur haft jákvæð áhrif á rekstur og framlegð greinarinnar. Þetta sést einna helst þegar skuldastaða staða stærri sjávarútvegsfyrirtækja er skoðuð miðað við hin fyrirtækin í greininni," segir í Markaðspunktunum. „Hagkvæmni og velgengni í sjávarútvegi ræðst ekki aðeins af því hversu mikið auðlindin sjálf getur gefið af sér heldur einnig af fjármögnunarkostnaði sem er stærri fyrirtækjum fremur í hag. Af þessu er ljóst að möguleiki er á talsverðri stærðarhagkvæmni í fiskveiðum og vinnslu, en hagkvæmnin hefur þegar gert vart við sig. Aukin nýliðun í greininni, sem stóra kvótafrumvarpið á að stuðla að, myndi auka fjölda smærri útgerða og draga úr aflaheimildum þeirra sem stærri eru. Spurningin er hvort verið sé að gera væntum nýliðum í útgerð greiða eða grikk með nýrri skipan fiskveiða, en staða smærri útgerða er í dag ekki svo öfundsverð." Síðan segir að því sé ljóst að boðaðar hækkanir á veiðigjaldinu hafa misíþyngjandi áhrif á greinina eftir því hvort litið er til stærri eða minni fyrirtækja. Jafnframt má segja að niðurstaðan bendi til þess að minni útgerðir séu mun viðkvæmari en þær stærri fyrir þeim breytingum á kvótakerfinu sem snúa að áhrifum á skuldsetningu fyrirtækja og veðsetningu aflaheimilda. Á árunum 2002-2008 jókst skuldsetning sjávarútvegs um tæplega 70% sem má að miklu leyti rekja til aukinnar veðsetningar vegna kvótakaupa. „Frá hruni hefur hins vegar orðið skuldahjöðnun í greininni og í dag eru skuldir sjávarútvegsins í evrum svipaðar og árið 2005. Ýmsir þættir geta skýrt slíka skuldahjöðnun. Líklega hafa mörg fyrirtæki nýtt sér betra árferði og greitt niður skuldir sínar á sama tíma og minna hefur verið um nýjar lántökur. Jafnframt er ekki ólíklegt að afurðalán sem falla undir skammtímaskuldir hafi einnig minnkað vegna betra árferðis milli áranna 2008 og 2009. Einnig er ekki hægt að útiloka að hluti skulda hafi verið færðar niður og afskrifaðar," segir í Markaðspunktunum.
Mest lesið Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Lokanir, lægðir og samviskubit Atvinnulíf Rafnar fylgir Herði og segir upp Viðskipti innlent „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Viðskipti innlent Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Viðskipti innlent Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Sjá meira