Forstjóri Húsamiðjunnar segir ómaklega vegið að fyrirtækinu 29. júní 2011 15:32
Forstjóri Húsasmiðjunnar segir ómaklega vegið að fyrirtækinu í fréttatilkynningu frá BYKO frá því í gær. Þar var greint frá uppsögnum og lokun einnar stærstu verslunar BYKO samstæðunnar. Í tilkynningunni segir að aðstæður í íslensku efnahagsumhverfi hafi í langan tíma verið slæmar með tilheyrandi samdrætti í verslun með byggingarvörur. „Þá hafa samkeppnisaðstæður á þeim markaði gjörbreyst með eignarhaldi og afskriftum banka á skuldum og síðar yfirtöku lífeyrissjóða á einu þeirra fyrirtækja sem starfrækt er á þessu sviði." Sigurður Arnar Sigurðsson, forstjóri Húsasmiðjunnar segir að hér sé augljóslega átt við Húsasmiðjuna sem nú er í eigu Framtakssjóðs Íslands. Sigurður segir að Húsasmiðjan hafi frá hruni íslenska bankakerfisins ráðist í gríðarlega umfangsmiklar og sársaukafullar aðgerðir til að bæta reksturinn. „Rekstrarkostnaður félagsins hefur dregist saman um 35% og starfsmönnum verið fækkað um allt að 50%. Flestir núverandi starfsmenn, að meðtöldum öllum lykilstjórnendum, hafa tekið á sig launaskerðingu til þess að leggja sitt af mörkum. Þannig hafa starfsmenn og stjórnendur lagt sig fram um að hagræða á öllum sviðum og vænta þeir viðunandi afkomu með auknum hagvexti og framkvæmdum í landinu á komandi tíð.“ Forstjórinn segir að frá því Framtakssjóður Íslands eignaðist Húsasmiðjuna hafi fyrirtækið ekki notið neinnar fjárhagslegrar aðstoðar frá eigendum sínum enda gangi áætlanir út á að fyrirtækið eflist á eigin verðleikum í heilbrigðri samkeppni. „Þannig býr Húsasmiðjan við nákvæmlega sömu skilyrði og önnur fyrirtæki landsins en eins og allir vita eru mörg þeirra í gjörgæslu bankanna,“ segir Sigurður.
Mest lesið Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Viðskipti innlent Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Viðskipti innlent Fyrsta apótek Víkur opnað Viðskipti innlent Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Viðskipti erlent Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Viðskipti erlent Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum Viðskipti innlent Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Viðskipti erlent Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés Viðskipti erlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Fleiri fréttir Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Sjá meira