Verulega dregur úr hagnaði OR milli ára 20. maí 2011 15:10
Hagnaður Orkuveitu Reykjavíkur (OR) á fyrsta ársfjórðungi ársins nam 2.318 milljónum króna en var 7.187 milljónir króna á fyrsta fjórðungi í fyrra þegar gengisþróun var hagfelldari en nú. Þetta kemur fram í yfirliti um reksturinn. Þar segir að regluleg starfsemi Orkuveitu Reykjavíkur (OR) skilaði betri afkomu fyrstu þrjá mánuði þessa árs en í fyrra. Það má rekja til aukinna tekna og aðhalds í rekstri. Handbært fé frá rekstrinum nam 3,9 milljörðum króna og hækkaði um tæpar 983 milljónir kr. Þrátt fyrir óhagstæða gengisþróun á fyrsta ársfjórðungi 2011 voru fjármagnsliðir jákvæðir og ræðst það af mikilli hækkun á álverði á tímabilinu sem eykur bókfært verðmæti raforkusölusamninga OR til stórnotenda. Árshlutareikningur samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur fyrir tímabilið 1. janúar til 31. mars 2011 var samþykktur og áritaður af stjórn og forstjóra á fundi stjórnar í dag. . Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla. „Orkuveita Reykjavíkur hefur breytt áherslum í rekstri og einbeitir sér nú að kjarnahlutverki sínu, veitustarfseminni. Það eru jákvæð teikn á lofti í rekstri kjarnastarfseminnar bæði hvað varðar tekjur og gjöld, en við þurfum að taka betur á við að ná niður rekstrarkostnaði,“ segir Bjarni Bjarnason, forstjóri OR í yfirlitinu.
Mest lesið Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Neytendur Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Viðskipti erlent Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Viðskipti innlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Atvinnulíf Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Atvinnulíf Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Fleiri fréttir Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Sjá meira