Walker vill kaupa Iceland, selur ekki sinn hlut 23. maí 2011 14:22
Malcolm Walker stofnandi Iceland Foods verslunarkeðjunnar segir að hann vilji kaupa Iceland og muni vissulega ekki selja sinn hlut þótt að annar kaupandi fáist að hlut skilanefndar Landsbankans. Þetta kemur fram í viðtali Reuters við Walker í dag. „Við höfum enn áhuga á að kaupa reksturinn,“ segir Walker en hann og aðrir æðstu stjórnendur Iceland eiga 24% hlut í keðjunni. Eins og fram hefur komið í fréttum hefur Morrison verslunarkeðjan sýnt því áhuga að festa kaup á Iceland og hefur 1,5 milljarður punda verið nefnt sem hugsanlegt söluverð. Talið er að hlutur Landsbankans upp á um 66% sé einn og sér andvirði eins milljarðs punda eða tæplega 190 milljarða kr. Glitnir á svo aftur 10% hlut í Iceland. Walker segir að menn séu aðeins að fara frammúr sér í fréttum um kaupáhugann á Iceland. Keðjan muni áfram verða með sjálfstæðan rekstur og vonandi undir núverandi stjórn. „Við munum annaðhvort eiga hana eða hafa vinsamlegan samstarfsaðila eins og Baugur var og jafnvel Landsbankinn,“ segir Walker. Í frétt Reuters er haft eftir Mike Dennis greinenda hjá MF Global að markaðurinn sé ekki viss um að Walker geti útvegað sér það fjármagn sem þarf til að kaupa Iceland. Talið er að hann skorti um hálfan milljarð punda til að geta slíkt.
Mest lesið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Fleiri fréttir Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Sjá meira