Lífeyrissjóðir orðnir helstu lánadrottnar heimilanna 10. maí 2011 12:55
Lífeyrissjóðirnir eru orðnir lánadrottnar tæplega tveggja þriðju hluta af verðtryggðum skuldum íslenskra heimila. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka þar sem fjallað er um eignir lífeyrissjóðanna sem núna nema 1.965 milljörðum kr. Í Morgunkorninu segir að á sama tíma og hlutabréfaeign lífeyrissjóðanna hefur hrunið hefur önnur breyting orðið á eignasamsetningu lífeyrissjóðanna, ekki síst undanfarið ár, sem er tilfærsla úr erlendum eignum yfir í verðtryggð skuldabréf með íbúðaveði. Séu íbúðabréf, húsnæðisbréf, húsbréf og sjóðfélagalán lífeyrissjóðanna lögð saman og borin saman við erlendar eignir sjóðanna má sjá að hlutfall þessara tveggja eignaflokka var lengst af svipað frá miðjum síðasta áratug, þótt fyrrnefndi eignaflokkurinn hafi tekið forystusætið af hinum síðarnefnda í kjölfar alþjóðlegu efnahagskreppunnar undir árslok 2008. Nú er hins vegar svo komið að verðtryggð skuldabréf með íbúðaveði nema tæplega 750 milljörðum kr. í bókum lífeyrissjóðanna, en erlendar eignir þeirra nema 483 milljörðum kr. „Veruleg breyting í þessa átt varð á vordögum í fyrra þegar lífeyrissjóðirnir eignuðust í svokölluðum Avens-viðskiptum talsverðan hluta útistandandi íbúðabréfa og greiddu fyrir með gjaldeyri sem aflað var með sölu erlendra eigna. Lífeyrissjóðirnir eru því beint eða óbeint lánardrottnar tæplega tveggja þriðju hluta verðtryggðra skulda íslenskra heimila,“ segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Valin vinsælust: „Lopapeysan og þetta reddast sjarminn einfaldlega selur“ Atvinnulíf Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Sjá meira