Kaupþing fær leyfi til að áfrýja í Tchenguiz málum 10. maí 2011 15:16
Áfrýjunardómstóll í Englandi hefur veitt Kaupþingi leyfi til að áfrýja niðurstöðu undirréttar í Englandi frá 16. mars 2011 þar sem frávísunarkröfum Kaupþings var hafnað í tveimur málum sem tengjast Tchenguiz bræðrunum. Þetta kemur fram á vefsíðu slitastjórnar Kaupþings. Þar segir að mál þessi voru höfðuð gegn Kaupþingi af Rawlinson & Hunter Trustees S.A. („Rawlinson & Hunter“) sem stýrir sjóðunum Tchenguiz Discretionary Trust og Tchenguiz Family Trust. Einnig var fallist á kröfu Kaupþings um að fresta efnishlið málaferlanna á meðan beðið er eftir niðurstöðu áfrýjunar. Rawlinson & Hunter hefur þegar óskað eftir því að efnishlið málaferlanna verði ekki frestað vegna áfrýjunarinnar. Kaupþing mun andmæli þeirri beiðni. Tchenguiz sjóðirnir lýstu kröfu í bú Kaupþings í desember 2009 eða um 6 mánuðum áður en málaferlin hófust í London. Þessum kröfum var hafnað af slitastjórn Kaupþings í mars 2010 og var því næst vísað til Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem málin eru nú til efnismeðferðar. Kröfur Rawlinson & Hunter fyrir undirrétti í Englandi endurspegla að stórum hluta sambærilegar kröfur sem nú þegar eru til meðferðar fyrir íslenskum dómstólum. Kaupþing hefur leitað atbeina enskra dómstóla við að afstýra því að samskonar málaferli séu háð samtímis í tveimur lögsögum. Samkvæmt íslenskum gjaldþrotalögum og lögum um fjármálafyrirtæki skal ágreiningur um réttmæti og upphæð krafna gegn íslensku fjármálafyrirtæki í slitameðferð leiddur til lykta af íslenskum dómstólum. Þann 10. febrúar 2011 hafnaði Héraðsdómur Reykjavíkur kröfu Rawlinson & Hunter um frestun málanna og úrskurðaði að málarekstri á Íslandi um kröfurnar skyldi fram haldið án tillits til málaferla í Englandi. Þann 18. mars 2011 vísaði Hæstiréttur Íslands frá kæru Rawlinson & Hunter á niðurstöðu Héraðsdóms. Takmarkanir á fullnustuaðgerðum og málaferlum utan þess lands þar sem slitameðferð hefst eru viðurkenndar í Evrópurétti sem grundvallaratriði til að tryggja samræmt ferli við slitameðferð fjármálafyrirtækja. Það var m.a. á þessum grundvelli sem leitast var eftir leyfi til áfrýjunar á niðurstöðu undirréttar í Englandi sem nú hefur verið samþykkt. Búist er við að áfrýjunarmálin verði tekin fyrir í haust. “Það hefur ávallt verið okkar skoðun að málefni sem varða endurskipulagningu og slitameðferð Kaupþings ráðist af íslenskum lögum og þar með að málshöfðunarbann og fullnustuvernd skuli vera viðurkennd af enskum dómstólum þannig að Tchenguiz sjóðirnir ættu ekki að fá að halda áfram þessum málaferlum í Englandi,“ segir Weil, Gotshal & Manges LLP, lögfræðilegur ráðgjafi Kaupþings
Tengdar fréttir Tchenguiz bræður krefjast milljarða frá Kaupþingi Tchenguiz bræðurnir reyna nú að höfða mál gegn Kaupþingi í London og segja bankann skulda þeim mörg hundruð milljarða. 10. febrúar 2011 07:16 Mest lesið Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Viðskipti innlent Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Neytendur Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Viðskipti erlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Atvinnulíf Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Sjá meira
Tchenguiz bræður krefjast milljarða frá Kaupþingi Tchenguiz bræðurnir reyna nú að höfða mál gegn Kaupþingi í London og segja bankann skulda þeim mörg hundruð milljarða. 10. febrúar 2011 07:16