Beið í 75 daga eftir ákvörðun Seðlabankans um smáaura 29. apríl 2011 15:23
Lúðvík Júlíusson segir farir sínar ekki sléttar í samskiptum sínum við Seðlabankann vegna umsóknar á undanþágu frá skilaskyldu samkvæmt gjaldeyrishöftunum. Lúðvík þurfti að bíða í 75 daga eftir ákvörðun bankans í máli sem snérist um 27 dollara eða rétt tæpar 3.000 kr. „Það er greinilega ekki sama hjá Seðlabankanum hvort til þeirra leitar Jón eða séra Jón,“ segir Lúðvík og á þar við meðferðina sem Samherji fékk þegar fyrirtækið sótti um undanþágu frá gjaldeyrishöftunum. Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja fjallar um það mál á vefsíðu fyrirtækisins í dag. Lúðvík segir að hann hafi lagt í smávægilega fjárfestingu vestan hafs fyrir hrunið haustið 2008. Í desember s.l. fékk hann greidda 27 dollara í vexti af þessari fjárfestingu sinni. „Ég sótti um undanþágu frá skilaskyldu á þessari upphæð enda myndi kostnaðurinn við að fá hana yfirfærða til Íslands éta hana upp að stórum hluta,“ segir Lúðvík. „Seðlabankinn hafnaði strax beiðni minni um undanþágu og þá leitaði ég til efnahags- og viðskiptaráðuneytisins sem einnig hafnaði málaleitan minni en hvatti mig til að sækja um aftur til bankans.“ Lúðvík segir að hann hafi aftur sótt um og loksins í mars s.l. eða 75 dögum seinna fékk hann undanþágu frá skilaskyldunni á þessum 27 dollurum. Lúðvík er ekki sáttur við þessa málsmeðferð og hefur vísað málinu til Umboðsmanns Alþingis. Seðlabankinn segir að þagnarskylduákvæði 15. greinar laga um gjaldeyrismál gera það að verkum að ekki er hægt að fjalla um einstaka aðila sem kunna að leita til Seðlabanka Íslands.
Tengdar fréttir Tók Samherja tvo daga að taka út gjaldeyri af reikningi Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja segir að það hafi tekið ekki færri en 13 starfsmenn fjögurra fyrirtækja í tvo daga að taka út farareyri í evrum til handa þeim starfsmönnum Samherja sem sækja sjávarútvegssýninguna í Brussel í næstu viku. Upphæðin sem um var að ræða nam 7.400 evrum eða um 1,2 milljón króna. 29. apríl 2011 10:13 Mest lesið Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Viðskipti innlent Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Neytendur Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Viðskipti erlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Atvinnulíf Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Sjá meira
Tók Samherja tvo daga að taka út gjaldeyri af reikningi Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja segir að það hafi tekið ekki færri en 13 starfsmenn fjögurra fyrirtækja í tvo daga að taka út farareyri í evrum til handa þeim starfsmönnum Samherja sem sækja sjávarútvegssýninguna í Brussel í næstu viku. Upphæðin sem um var að ræða nam 7.400 evrum eða um 1,2 milljón króna. 29. apríl 2011 10:13