Óvissan litar efnahagsmálin eftir Icesave kosningu 12. apríl 2011 14:24
Greining Arion banka veltir fyrir sér þróun efnahagsmála í kjölfar þess að Icesave lögunum var hafnað um helgina. Það er óvissan sem einkennir efnahagsmálin umfram annað að mati greiningarinnar. Óvissan er m.a. um getu Seðlabankans til að mæta því að erlendir lánsfjármarkaðir lokist. Greiningin fjallar um málið í Markaðspunktum sínum. Þar segir að töluverð óvissa er um frekari lán frá Norðulandaþjóðum/Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og aðkomu ríkisins á erlenda fjármagnsmarkaði í kjölfar synjunnar á Icesave lögunum. Vaknar sú spurning hvort ríkið geti fjármagnað gjalddaga næstu ára án utanaðkomandi aðstoðar? Ef ekki, hversu mikinn gjaldeyri þyrfti Seðlabankinn að útvega sér á markaði og eru slík áform raunhæf? Á pappírunum ætti svigrúm Seðlabankans til gjaldeyriskaupa að vera ríflegt á næstu árum. Í ritinu „Hvað skuldar þjóðin“ kemur fram að undirliggjandi viðskiptaafgangur, vöru- og þjónustuafgangur mínus nettó vaxta- og arðgreiðslur úr landi, þegar búið er að taka Actavis og áhrif föllnu bankanna í burtu, verði 12,3% árið 2011, 12% á næsta ári og 9,8% árið 2013. Uppsafnaður viðskiptaafgangur fram til ársins 2013 ætti því að nema um 540 milljörðum króna. Þessi spá er m.a. lögð til grundvallar sem mælikvarði á gjaldeyrissöfnun þjóðarinnar næstu árin í skýrslu um afnám gjaldeyrishafta. Ef gengið er út frá því að þessi gjaldeyrir skili sér til landsins virðist svigrúm Seðlabankans vera umtalsvert til forðasöfnunar, þó að því gefnu að viðskiptaafgangurinn fari ekki nema að hluta til út um fjármagnsjöfnuð það er afborganir af erlendum lánum. Þessi gjaldeyrir er þó langt frá því að vera fastur í hendi enda um áætlanir að ræða. Greiningin segir að mikilvægt sé að hafa í huga að gjaldeyrisforði Seðlabankans hefur aldrei verið stærri eða um 766 milljarðar króna. Hinsvegar má ekki gleyma að hann er allur tekinn að láni og ríflega það. Reyndar er gjaldeyrisstaðan þ.e. eignir mínus skuldir í erlendri mynt neikvæð um 30 milljarða króna. „Ef við skoðum betur samsetningu forðans kemur í ljós að einungis hluti hans er aðgengilegur þar sem um 300 milljarðar eru innlán skilanefnda og innlendra bankastofnanna í Seðlabankanum, fé sem verður að stærstu leyti greitt út til erlendra kröfuhafa mjög fljótlega,“ segir í Markaðspunktunum. Það sem eftir stendur er því „tiltækur“ forði upp á hann tæplega 470 milljarðar króna. Af því gefnu að gengið verði á forðann til að greiða niður gjalddaga þessa árs þá fellur tiltækur forði niður í 250 milljarða króna fyrir árslok. Ef hið opinbera hefði lítinn sem engan aðgang að erlendu fjármagni myndi gjaldeyrisforðinn tæmast á um 3 árum. Því skiptir sköpum að spá Seðlabankans um viðskiptaafgang gangi upp. Gangi spá um viðskiptajöfnuð eftir ætti Seðlabankinn fræðilega að geta safnað fyrir gjalddögum hins opinbera og orkufyrirtækja á næstu árum, án þess að ganga á gjaldeyrisforðann eða stefna gengi krónunnar í hættu. „Stóra spurningin í dag er því hvernig aðgangur að erlendum lánsfjármörkuðum muni þróast fyrir íslenska ríkið. Verði hann lokaður eða kjörin slæm er ljóst að svigrúm til að bíða eftir miklu gjaldeyrisinnflæði fer minnkandi hjá Seðlabankanum. Fljótlega á seinni helmingi þessa árs eða upphafi þess næsta gæti því Seðlabankinn þurft að gera sig breiðari á gjaldeyrismarkaði í því skyni að byggja upp óskuldsettan varasjóð til framtíðar,“ segir í Markaðspunktunum.
Mest lesið Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Viðskipti innlent Play komið í eignasafn Icelandair Viðskipti innlent Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Viðskipti innlent Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Viðskipti innlent Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Viðskipti innlent Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Viðskipti innlent Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Viðskipti erlent Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Neytendur Fleiri fréttir Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Sjá meira