Útgjöld til heilbrigðismála hafa vaxið verulega 14. apríl 2011 09:11
Heildarútgjöld til heilbrigðismála hafa vaxið verulega síðasta aldarfjórðung eða úr ríflega 6,3% af landsframleiðslu í upphafi níunda áratugarins í ríflega 9,3% af landsframleiðslu á síðasta ári. Það samsvarar 143,5 milljörðum króna á verðlagi þess árs. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar en út eru komin Hagtíðindi í efnisflokknum þjóðhagsreikningar um heilbrigðisútgjöld á Íslandi. Gefið er talnalegt yfirlit um helstu þætti heilbrigðisútgjalda síðustu árin. Af heildarútgjöldum til heilbrigðismála greiðir hið opinbera 115,6 milljarða króna og einkaaðilar 27,9 milljarða. Á þremur áratugum hafa útgjöld hins opinbera til þessa málaflokks aukist úr 5,5% af landsframleiðslu í 7,5%. Á sama tíma hafa útgjöld heimilanna til heilbrigðismála ríflega tvöfaldast, úr 0,8% af landsframleiðslu í 1,8%. Hlutur heimilanna hefur aukist verulega frá 1980 eða úr 12,8% af heildarútgjöldum í 19,5% árið 2010. Hámarki náði hlutur þeirra árið 1998 er hann nam 19,6% af heildarútgjöldum til heilbrigðismála. Til þess að meta vöxt heilbrigðisútgjalda að raungildi frá 1980 er nærtækast að staðvirða heilbrigðisútgjöld hins opinbera með verðvísitölu samneyslu og útgjöld einkaaðila með verðvísitölu heilbrigðisútgjalda einkaneyslunnar. Í byrjun níunda áratugarins voru heilbrigðisútgjöld um 52 milljarðar króna á verðlagi 2010 en ríflega 143 milljarðar árið 2010. Heilbrigðisþjónustan hefur því nærri þrefaldast að magni (um 176% vöxtur) á þessu tímabili. Heilbrigðisútgjöld á mann voru hins vegar um 451 þúsund krónur árið 2010 en 226,5 þúsund krónur í byrjun níunda áratugarins á verðlagi 2010 og hafa því nærri tvöfaldast (99,3% vöxtur) síðustu þrjá áratugi. Á árunum 2002-2009 stóðu þau nánast í stað og voru um 470-485 þúsund krónur á mann á sama verðlagi. Árið 2010 lækkuðu þau í 451 þúsund krónur á mann, einnig á sama verðlagi.
Mest lesið Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Viðskipti innlent Play komið í eignasafn Icelandair Viðskipti innlent Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Viðskipti innlent Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Viðskipti innlent Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Viðskipti innlent Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Viðskipti innlent Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Viðskipti erlent Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Sjá meira