Skoðun

Fram fram fylking!

Sóley Tómasdóttir skrifar
Í dag hefst fundaferð um Reykjavík, þar sem fyrirhugaðar sameiningar leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila verða kynntar í hverju hverfi fyrir sig. Borgarstjóri og formaður menntaráðs  flytja erindi í Grafarvogi kl. 11 og Breiðholti kl. 14. Ekki er gert ráð fyrir fulltrúum kennara, stjórnenda, foreldra eða minnihlutans á mælendaskrá. Meirihlutinn kynnir og borgarbúar hlusta. Þetta kemur svo sem ekki á óvart, enda hefur meirihlutinn hvorki gefið færi á samtali eða samstarfi í undirbúningsferlinu og virt alla gagnrýni að vettugi.

Fyrirhugaðar breytingar á skólastarfi er stórmál. Þær varða okkur öll, þær lúta að þjónustu við börnin okkar í dag og tækifærum þeirra til framtíðar. Í einni hendingu á að gera stórkarlalegar breytingar á frístundaheimilum borgarinnar, sameina 30 leikskóla, nokkra grunnskóla, búa til safnskóla, færa aldursmörk og fleira og fleira. Hver og ein þessara breytinga hefði krafist ítarlegrar greiningar og yfirlegu af hálfu fagfólks, samráðs við foreldra, tíma, ráðrúms og gagnrýninnar hugsunar.

Nú eru tillögurnar í umsagnarferli hjá fag- og stéttarfélögum og hagsmunasamtökum. Þó það sé tilhlökkunarefni að fá faglega rökstudd álit þeirra, þá lítur því miður ekki út fyrir að þau verði tekin alvarlega frekar en annað. Umsagnarfrestur rennur út 25. mars nk. og stefnt er að samþykkja tillögurnar 29. mars. Vel ígrunduð og upplýst ákvörðun um svo viðamiklar grundvallarbreytingar á reykvísku skólakerfi verða ekki teknar á einni helgi. Enn eina ferðina er því um sýndarsamráð að ræða, meirihlutann varðar ekkert um skoðanir annarra.

Meirihluti Besta flokks og Samfylkingar hefur ekki aðeins hunsað samráð við fagfólk, foreldra og minnihlutann, heldur hefur hann ekki gefið sér tíma til að meta áhrif þeirra breytinga sem þegar hefur verið ráðist í. Áhrif svona breytinga koma fram á mörgum árum og því alls ekki ljóst hver áhrifin eru af þeim sameiningum sem þegar hafa farið fram. Mikil áhætta felst í slíkum gassagangi þar sem daglegt líf barna og fagstarf með þeim er undir.

Þau einstrengingslegu vinnubrögð sem nú eru viðhöfð eru óásættanleg með öllu. Ég skora á foreldra og fagfólk að gefast ekki upp, heldur standa saman og með börnunum í borginni og láta rödd sína heyrast. Nauðsynlegt er að þessi áform meirihlutans verði tekin til gagngerrar endurskoðunar í sátt og samráði við borgarbúa og með hag barnanna að leiðarljósi.

 




Skoðun

Sjá meira


×