Þegar farinn að skrifa handritið Jón Hákon Halldórsson skrifar 15. mars 2011 13:34 Sigurjón Sighvatsson ætlar að gera mynd eftir bók Yrsu Sigurðardóttur.
Sigurjón Sighvatsson kvikmyndaframleiðandi hefur ráðið Ottó Geir Borg til þess að skrifa handritið að bókinni „Ég man þig" eftir Yrsu Sigurðardóttur. Ottó er þegar byrjaður að skrifa handritið og Sigurjón er vongóður um að tökur geti hafist fljótlega. Hann segir vel koma til greina að taka myndina upp á Hesteyri, þar sem sagan gerist. Myndin verður tekin upp á íslensku. „Ég á nú von á því að hún verði tekin upp á íslensku, alla vega að stórum hluta til. Það er mikið af myndmáli, ekki endilega svo mikið talað mál í rauninni. Ég geri ráð fyrir því að þetta verði íslensk bíómynd, en hvort það verði einhver önnur tungumál ívafin er svo aftur annað mál," segir Sigurjón í samtali við Vísi. Sigurjón segist þekkja staðinn þar sem sagan gerist ágætlega. Fyrsta hugsun sé að taka myndina upp þar. „En það eru líka aðrir staðir sem hafa komið til umræðu. Við eigum eftir að taka sumarið í að skoða fleiri staði," segir Sigurjón. Hann er hins vegar ekki farinn að velta fyrir sér leikurum í helstu hlutverk. „Við þurfum aðeins að fá betri heildarmynd á þetta. En það er fullt til af góðum leikurum á Íslandi," segir Sigurjón. Sigurjón segir erfitt að spá fyrir um það hvenær tökur geti hafist. Það fari allt eftir því hvernig gangi að skrifa handritið. Það sé hins vegar góðs viti að handritshöfundur sé byrjaður að skrifa. „Hann er byrjaður að skrifa, sem er frekar óvenjulegt. Það gerist frekar hratt. Það er kosturinn við það að vinna utan Hollywood. Hlutirnir í Hollywood gerast hægt. Þannig að ég er vongóður um það að hægt sé að gera þetta fljótlega," segir Sigurjón.
Tengdar fréttir Sigurjón Sighvatsson vill kvikmynda bók Yrsu Sigurjón Sighvatsson hefur tryggt sér kvikmyndaréttinn á metsölubók Yrsu Sigurðardóttur, Ég man þig, sem var ein mest selda bók liðins árs og situr nú í efsta sæti Bóksölulistans. 15. mars 2011 09:14 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Stöðugt landris og hugað að rýmingu Innlent Skjálftavirkni aukist í kjölfar gosloka Innlent Færeyingar áforma 4.500 króna aðgangseyri á alla ferðamenn Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Innlent Dýrin séu dauð, veik, horuð og í miklum vanhöldum Innlent Börnum safnað saman og þau skotin Erlent Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Innlent Ræktar 95 tegundir af túlípönum í Mosfellsdal Innlent Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Erlent Fleiri fréttir Skjálftavirkni aukist í kjölfar gosloka Stöðugt landris og hugað að rýmingu Ræktar 95 tegundir af túlípönum í Mosfellsdal Dýrin séu dauð, veik, horuð og í miklum vanhöldum Ríkisstjórn þurfi að gera meira í þágu vopnahlés Dauð lömb á túni, árás á Rafah og Eurovision Maður sem áreitir börn í Hafnarfirði til rannsóknar Sýknaður af nauðgun en enginn vafi að konan telji á sér brotið Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Sinubruni við Hellisskóg á Selfossi 150 þolendum sinnt vegna ofbeldis í nánu sambandi Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Stóra Svört bar fimm svörtum lömbum Eldgosinu lokið, meintur fjárdráttur og manndrápsrannsókn Eldvörp líkleg næst Rannsókn vegna meints manndráps í Kiðjabergi miðar vel Samanburður við lóðamál olíufélaganna eins „fjarri sannleikanum og hægt er“ Guðríður Hrund skipuð skólameistari MK Eldgosinu lokið eftir 54 daga Leggja aftur fram tillögu um að selja húsnæði MÍR Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Sjá meira
Sigurjón Sighvatsson vill kvikmynda bók Yrsu Sigurjón Sighvatsson hefur tryggt sér kvikmyndaréttinn á metsölubók Yrsu Sigurðardóttur, Ég man þig, sem var ein mest selda bók liðins árs og situr nú í efsta sæti Bóksölulistans. 15. mars 2011 09:14