Capacent íhugar að höfða meiðyrðamál gegn skiptastjóra 4. mars 2011 12:04 Capacent.
Capacent íhuga að höfða meiðyrðarmál á hendur skiptastjóra félagsins GH1 vegna ítrekaðra yfirlýsinga um lögbrot, en þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Capacent sem var send á fjölmiðla vegna forsíðufréttar Fréttablaðsins í morgun. Á forsíðu Fréttablaðsins í morgun lýsir skiptastjóri GH1 því yfir að hann hafi óskað eftir að efnhagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra rannsaki sölu á rekstri Capacent og staðhæfir að veðsettar eignir hafi verið seldar. Í fréttinni kom fram að skiptastjóri félagsins GH1, sem áður hét Capacent, hefur farið fram á að efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra rannsaki kaup á rekstri Capacent á Íslandi. Þykir leika grunur á að veðsettar eignir hafi verið seldar án heimildar veðsala. Í yfirlýsingunni kemur meðal annars fram að kröfu skiptastjóra um lögbann hafi verið hafnað hjá sýslumanni. Svo segir í tilkynningunni: „Í september 2010 tók viðskiptabanki Capacent ákvörðun um að gjaldfella lán félagsins eftir að viðræður um fjárhagslega endurskipulagningu, er staðið höfðu í á annað ár, leiddu ekki til niðurstöðu. Það blasti við að rekstur félagsins myndi stöðvast og starfsmenn missa vinnu sína. Ákváðu starfsmenn því að standa saman að stofnun nýs félags er keypti rekstur og vörumerki Capacent. Að félaginu stendur meirihluti starfsmanna Capacent og er eignaraðild mjög dreifð. Með þessu móti var hægt að tryggja áfram störf allra starfsmanna og áframhaldandi þjónustu við viðskiptavini. Að kaupunum var staðið með eðlilegum hætti. Fráleitt er að halda því fram að keyptar hafi verið veðsettar eignir. Viðskiptakröfur voru veðsettar og sátu þær því eftir í þrotabúinu. Við kaup á rekstrinum var þess gætt að kaupverð endurspeglaði verðmæti hins keypta og kappkostað að rétt væri staðið að kaupunum. Sé ágreiningur um kaupverð er eðlilegt að leysa úr honum fyrir dómstólum. Kröfu skiptastjóra um að lögbann yrði sett á notkun vörumerkis Capacent var hafnað af sýslumanni enda engar forsendur fyrir slíku lögbanni."
Tengdar fréttir Skiptastjóri Capacent vill lögreglurannsókn Skiptastjóri félagsins GH1, sem áður hét Capacent, hefur farið fram á að efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra rannsaki kaup á rekstri Capacent á Íslandi. Þykir leika grunur á að veðsettar eignir hafi verið seldar án heimildar veðsala. Þessu vísa forsvarsmenn Capacent alfarið á bug og íhuga meiðyrðamál gegn skiptastjóranum. Félag í eigu starfsmanna keypti í september rekstur og vörumerki Capacent í kjölfar þess að ekki tókst að semja um niðurfellingu á erlendu láni sem hvíldi á fyrirtækinu. 4. mars 2011 05:00 Mest lesið Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Viðskipti innlent Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Viðskipti innlent Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Viðskipti innlent Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Sjá meira
Skiptastjóri Capacent vill lögreglurannsókn Skiptastjóri félagsins GH1, sem áður hét Capacent, hefur farið fram á að efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra rannsaki kaup á rekstri Capacent á Íslandi. Þykir leika grunur á að veðsettar eignir hafi verið seldar án heimildar veðsala. Þessu vísa forsvarsmenn Capacent alfarið á bug og íhuga meiðyrðamál gegn skiptastjóranum. Félag í eigu starfsmanna keypti í september rekstur og vörumerki Capacent í kjölfar þess að ekki tókst að semja um niðurfellingu á erlendu láni sem hvíldi á fyrirtækinu. 4. mars 2011 05:00