Lánuðu sér meira en lög heimiluðu 28. ágúst 2011 18:44
Fyrrverandi stjórnarmenn í MP banka lánuðu sjálfum sér og tengdum aðilum fimmfalt meira en lög heimiluðu árið 2009. Í lok árs 2009 námu lán til fjögurra stjórnarmanna í MP banka og tengdra aðila 126 prósentum af eiginfjárgrunni bankans en máttu lögum samkvæmt nema að hámarki 25 prósentum skv. lögum um fjármálafyrirtæki. Þegar MP banki var seldur til nýrra fjárfesta fóru þær eignir sem urðu eftir við söluna inn í EA eignarhaldsfélag, sem gegnir því eiginlega hlutverki gamla MP banka, ef svo má að orði komast. Fjármálaeftirið sektaði EA Eignarhaldsfélag í vikunni um 15 milljónir króna fyrir þessar lánveitingar, en sektin er sama fjárhæð og fæst fyrir um það bil þrjátíu fermetra kjallaraíbúð í miðbæ Reykjavíkur. Til að setja þetta hlutfall í samhengi, 126 prósent, þá er ágætt að rifja upp að útrásarvíkingar voru harðlega gagnrýndir vegna lána sem námu allt að 50 prósentum af eiginfjárgrunni gömlu viðskiptabankanna. Þetta er ítarlega rakið t.d í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Þá vildi einn hluthafi í Landsbankanum, Ólafur Kristinsson lögmaður, safna saman fólki til að fara í skaðabótamál vegna mikilla lána Landsbankans til félaga í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar og tengdra aðila, sem samkvæmt skýrslunni námu á einum tímapunkti fimmtíu prósentum af eiginfjárgrunni Landsbankans. En hvaða stjórnarmenn í gamla MP banka voru þetta sem lánuðu sér svona mikla peninga? Samkvæmt ársreikningi voru Margeir Pétursson, stjórnarformaður, Sigurður Gísli Pálmason, Hallgrímur G. Jónsson, Kristinn Zimsen og Sigfús Ingimundarson í stjórn bankans í árslok 2009. Í tilkynningu FME eru nöfn stjórnarmanna hins vegar ekki birt. Í rökstuðningi FME fyrir sektinni að áhættan hafi falist í lánum til félaga í eigu stjórnarmannanna eða félaga sem þeir sátu í stjórnum hjá, allt hafi þetta verið hluti af „þéttriðnu tengslaneti fjórmenninganna sem var hnýtt með viðskiptatengslum og að hluta til fjölskylduböndum," eins og þar segir. En eru 15 milljónir króna há sektarfjárhæð þegar menn lána sjálfum sér fimmfalt meira en þeir mega samkvæmt lögum? Einhver gæti haldið því fram að það væri ekki há fjárhæð, svona í ljósi alvarleika brotsins. Gunnar Andersen, forstjóri FME, sagði við fréttastofu í dag að skalinn á sektum væri frá 50 þúsund krónum upp í 50 milljónir. Tekið væri mið af þessum skala, alvarleika brotanna og fjárhagsstöðu viðkomandi fyrirtækis. Ef horft væri á heildareignir gamla MP banka í hlutfalli við eignir stóru bankanna þriggja þá hafi heildareignir MP banka verið innan við 10 prósent af eignum minnsta bankans. Það skal tekið fram að sektin og lánveitingarnar tengjast með engum hætti nýjum eigendum MP banka. EA fjárfestingarfélag hf. hefur höfðað mál gegn Fjármálaeftirlitinu fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur og krafist ógildingar sektarákvörðunarinnar.
Mest lesið Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Viðskipti innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Lokanir, lægðir og samviskubit Atvinnulíf Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Viðskipti innlent Rafnar fylgir Herði og segir upp Viðskipti innlent Er bíllinn klár fyrir veturinn? Kíktu á vetrartékklista Bílanausts Lífið samstarf Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Sjá meira