Vill sjá hausa fjúka 18. júní 2011 17:48 Mynd/Róbert Reynisson „
Í ríkisstjórnum þar sem menn gerðu faglegar kröfur og kysu gagnsæ vinnubrögð væru hausar farnir að fjúka, eftir þá útreið sem sjávarútvegsstefna ríkisstjórnarinnar hefur fengið," segir Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks og fyrrverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, um skýrslu hagfræðinga um kvótfrumvarp ríkisstjórnarinnar. Sérfræðinganefndin gagnrýnir frumvarp núverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Jóns Bjarnasonar, um breytingar á stjórn fiskveiða harðlega. Frumvarpið geri nýliðun í greininni erfiða og álögur á útgerðina verði of miklar, að mati sérfræðinganna. Einar segir niðurstöðu sérfræðingahópsins slíkan áfellisdóm yfir stefnu ríkisstjórnarflokkanna í þessum grundvallarmálaflokki að einhver hljóta að vera farinn að huga að því að hirða pokann sinn. Einar fjallar um málið á heimasíðu sinni. Þar segir Einar þetta ekki í fyrsta sinn sem stefna ríkisstjórnarflokkanna í sjávarútvegsmálum fái svona verkun. „Í endurskoðunarnefndinni, sem kölluð hefur verið sáttanefnd, var leitað til Rannsóknarstofnunar Háskólans á Akureyri til þess að leggja mat á sjávarútvegsmálin og taka fyrningarleið ríkisstjórnarflokkanna sérstaklega út. Þar fékk fyrningarleiðin hrikalega útreið." Þá segir Einar að það vekji athygli að ekki skuli lengur vera talað um þessi mál sem ríkisstjórnarmál heldur þess í stað talað um frumvörp Jóns Bjarnasonar. „Það á greinilega að reyna að hengja hann fyrir að hafa lagt fram kolómöguleg frumvörp. En þá skulum við gá að einu. Þessi frumvörp eru að sönnu á stjórnskipunarlega ábyrgð Jóns Bjarnasonar. En alveg fram að því að síðasti stafkrókur var í þeim skrifaður höfðu Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon hönd í bagga. Og það höfðu líka fjórir eða fimm handvaldir þingmenn stjórnarflokkanna. Þetta fólk, - einkanlega ráðherrarnir, - bera því fulla ábyrgð á hneykslinu. Frumvörpunum, sem allir fyrirverða sig nú fyrir, en voru óvart afrakstur átta mánaða vinnu, samstarfs og hrossakaupa stjórnarflokkanna í þessum málaflokki." Skrif Einars er hægt að lesa hér.
Tengdar fréttir Sérfræðingahópur Jóns gagnrýnir kvótafrumvarpið Fimm manna sérfræðinganefnd sjávarútvegsráðherra gagnrýnir frumvarp ráðherrans um breytingar á stjórn fiskveiða harðlega. Frumvarpið geri nýliðun í greininni erfiða og álögur á útgerðina verði of miklar. 18. júní 2011 12:34 Mest lesið Eldur logar í þaki Kringlunnar Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Innlent Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Innlent Katrín kemur fram í fyrsta sinn frá krabbameinsgreiningu Erlent Festust á hvolfi í hálftíma Erlent Fleiri fréttir Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Kjósendur Jóns Gnarr líklegastir til að vera ósáttir með Höllu Vilja banna hvalveiðar með lögum Áttatíu prósent af plasti í fjörum landsins kemur frá útlöndum Efast um að ráðherrar nái fram markmiði sínu Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Rútuslys í Öxnadal og meintar rangfærslur ráðherra Guðni snýr aftur í sagnfræðina Leita að nýju húsnæði fyrir kaffistofu Samhjálpar Öxnadalsheiði opin á ný Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Bein útsending: Brautskráningar Háskóla Íslands Svandís og Sigurður Ingi sögð bakka upp bílastæðagjöldin Of snemmt að kenna bikblæðingum um Átök á lokametrunum: Saka ríkisstjórn um að „slátra“ samgönguáætlun Kynntu á annað hundrað aðgerðir í loftslagsmálum Sjá meira
Sérfræðingahópur Jóns gagnrýnir kvótafrumvarpið Fimm manna sérfræðinganefnd sjávarútvegsráðherra gagnrýnir frumvarp ráðherrans um breytingar á stjórn fiskveiða harðlega. Frumvarpið geri nýliðun í greininni erfiða og álögur á útgerðina verði of miklar. 18. júní 2011 12:34