Gæti verið langt í ákvörðun um sölu Haga Þorbjörn Þórðarson skrifar 17. janúar 2010 19:00
Vikur eða mánuðir gætu verið þar til stjórn Arion banka tekur afstöðu til tilboðs Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og fjölskyldu í tæplega 96 prósenta hlut Arion í Högum, að sögn stjórnarmanns í bankanum. Tilboð Bónusfjölskyldunnar hafi sett málið í biðstöðu, en hefði það ekki komið til, væru Hagar nú til sölu. Stjórn Arion banka mun funda í höfuðstöðvum bankans á þriðjudaginn kl. 5, samkvæmt heimildum fréttastofu. Á fundinum eru m.a mál Haga á dagskrá, en á borðinu liggur fyrir kauptilboð í 95,7 prósent hlut bankans í fyrirtækinu sem þó er háð fyrirvara um áreiðanleikakönnun. Undanfarið hafa starfsmenn fyrirtækjaráðgjafar Arion banka og aðrir sérfræðingar innan bankans vegið og metið þætti tilboðsins með hliðsjón af stöðu Haga og áætluðu verðmæti. Stjórnarmenn í Arion banka sem fréttastofa ræddi við segja að ólíklegt sé að ákvörðun verði tekin í málinu á þriðjudag. Einn stjórnarmaður segir það „glórulaust" að taka afstöðu til tilboðsins eftir stutta kynningu. Hann segir að málið sé ekki komið jafn langt og ýjað hefur verið að í fjölmiðlum og því sé fréttaflutningur af málinu beinlínis villandi. Stjórnarmaðurinn segir að á margan hátt sé æskilegt að bíða með ákvörðun í málinu, en tilboðið hafi í raun sett málið á klaka. Reikningsárið hjá Högum endi í febrúar og jafnframt þurfi sölutölur úr jólaverslun fyrirtækja Haga að liggja fyrir. Stjórnin eigi að taka viðskiptalegar ákvarðanir með hagsmuni bankans að leiðarljósi, því sé óheppilegt að rjúka af stað með einhverjar ákvarðanir nema þær þjóni hagsmunum bankans. Annar heimildarmaður segir að betra sé fyrir fulltrúa ríkisins í stjórninni að bíða þar sem núverandi stjórn sé millibilsástand. Hann bendir hins vegar á að auðveldara sé að taka ákvörðun um höfnun tilboðsins og hefja söluferli, enda sé síst til vinsælda fallið að fulltrúar ríkisins ákveði að selja fyrrverandi eigendum fyrirtækið aftur. Núverandi stjórn Arion banka er þannig að fjórir stjórnarmenn eru fyrir hönd ríkisins og fara þeir með 5 atkvæði á móti 5 atkvæðum tveggja fulltrúa skilanefndar Kaupþings. Formaður stjórnar fer ekki með oddaatkvæði, samkvæmt samþykktum Arion banka. Langt er í að ný stjórn bankans verði skipuð, enda þarf Fjármálaeftirlitið að staðfesta stjórnarmenn og reynslan sýnir að eftirlitið tekur sér góðan tíma ákvarðanir þar að lútandi. Fyrst þarf að skipa stjórn Kaupskila ehf. sem heldur utan um hlut skilanefndar Kaupþings í Arion banka og FME þarf að samþykkja þá stjórn. Þá þarf FME einnig að samþykkja nýja stjórn í bankanum í samræmi við þau skilyrði sem hafa verið sett, þ.e þeir mega ekki vera í umboði kröfuhafa og jafnframt má aðeins einn stjórnarmaður vera úr skilanefndinni.
Mest lesið „Ekkert Viking eða Gull“ á nýjum stað í B5 Viðskipti innlent Segir ofboðslegan undirliggjandi þrýsting á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Kynntu nýja útgáfu ChatGPT: „Þetta er eins og að tala við sérfræðing“ Viðskipti erlent Fylgdu ekki fyrirmælum um að skýra skrópgjaldið betur og fá sekt Neytendur Frá Gamma til Arctica og nú Seðlabankans Viðskipti innlent Reikna með að skila hagnaði á næsta ári Viðskipti innlent Kristján og Leó kaupa Landsbankahúsið á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Erfitt að vera mikið einn í vinnu og án mikilla samskipta Atvinnulíf Nýtt trend: Sami stjórnandinn að vinna fyrir mörg fyrirtæki Atvinnulíf Í vinnutengdri ástarsorg Atvinnulíf Fleiri fréttir „Ekkert Viking eða Gull“ á nýjum stað í B5 Segir ofboðslegan undirliggjandi þrýsting á fasteignamarkaði Reikna með að skila hagnaði á næsta ári Frá Gamma til Arctica og nú Seðlabankans Atvinnuleysi 2,8 prósent í júní Trump-tollarnir hafa tekið gildi Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Arion hagnaðist um tíu milljarða á öðrum fjórðungi Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Festi hagnast umfram væntingar Þota Play komin úr viðgerð eftir skemmdir vegna hagléls Evrópa verði upp á Kína komin verði af tollunum Sigurður viðskiptastjóri innviðalausna hjá Ofar Hagnaður minnkar um 38 prósent og arðgreiðsla óákveðin Funda með ráðherra vegna tollanna: „Ég ætla ekki að setjast í neitt dómarasæti“ Á ég að greiða inn á lánið eða spara? Loksins, mathöllin og fleiri staðir fá nýja rekstraraðila „Við erum að bæta við atvinnustoð í samfélaginu“ Kristján og Leó kaupa Landsbankahúsið á tæpa þrjá milljarða Sjómönnum sagt upp: Skipulagsbreytingar vegna veiðigjalda Sjá meira