Las ekki samninga en gaf út bók um stjórnun Sjóvár 26. janúar 2010 19:00 Þór Sigfússon.
Þór Sigfússon, fyrrverandi forstjóri Sjóvár, sem hefur nú stöðu sakbornings í rannsókn embættis sérstaks saksóknara á málefnum tryggingafélagsins gaf út bókina „Betrun - Hvernig bæta má stjórnun með því að læra af mistökum," haustið 2008. Í kynningu um bókina segir að bókin fjalli um þau verkefni sem biðu Þórs þegar hann settist í forstjórastól Sjóvár; rekstur, samskipti, starfsanda, ímynd - en ekki síður lærdómana og mistökin. Þá segir í kynningu, sem er aðgengileg á vef Sjóvár, að Þór noti Sjóvá í bókinni sem dæmi um fyrirtæki sem hafi náð góðum árangri í vátryggingarekstrinum. Þann árangur þakki hann ekki síst því að Sjóváteymið hafi tekist á við vandamálin, rætt um þau og leitað lausna. Nýttu bótasjóðinn Rannsókn sérstaks saksóknara á málefnum Sjóvár snýr að því að því að fé úr vátryggingarekstri Sjóvár hafi verið notað í fjárfestingarstarfsemi þess. Þannig hafi fjármagn úr bótasjóði tryggingafélagsins verið nýtt í fjárfestingar á vegum móðurfélagsins Milestone. Eigendur og stjórnendur Sjóvár, þ.á.m Þór, eru grunaðir um að hafa brotið hlutafélagalög, lög um vátryggingastarfsemi og gerst sekir um umboðssvik, en þau tilheyra auðgunarbrotakafla hegningarlaga og geta varðað allt að sex ára fangelsi ef sakir eru miklar. Þór sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 síðastliðið sunnudagskvöld að hann hefði fengið samninga af ýmsu tagi inn á borð til sín. Vátryggingasamninga, viðskiptasamninga og fjárfestingasamninga. „Ég gat ómögulega lesið þá alla yfir. Margir eru hundruðir síðna. Ég þurfti að treysta því fólki sem var í kringum mig," sagði Þór, en í yfirheyrslum yfir Steingrími Wernerssyni sagði Steingrímur að Guðmundur Ólason, framkvæmdastjóri Milestone, hefði stýrt bótasjóði Sjóvár og að Þór Sigfússon hefði verið eins konar verkfæri í höndunum á eigendum tryggingafélagsins. „Ég var fyrst og fremst, mér var falið að sinna vátryggingum. Ég hins vegar skrifaði undir heilmikið af plöggum í kringum fjárfestingarnar. Það er það sem ég þarf að horfast í augu við. Ég hafði aldrei persónulegra fjárhagslegra hagsmuna að gæta í því," sagði Þór í kvöldfréttum Stöðvar 2 síðastliðið sunnudagskvöld.
Mest lesið Vara við afleiðingunum Viðskipti innlent Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Viðskipti innlent Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Viðskipti innlent Þegar allt er að fara fjandans til… Atvinnulíf NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Viðskipti innlent Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Viðskipti innlent Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Viðskipti innlent Skordýraeitur á Pinkids eplum í öskju Neytendur Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Sjá meira