Icelandair leikur stórt hlutverk í kynningarherferð 9. nóvember 2010 09:20
Icelandair leikur stórt hlutverk í umfangsmikilli kynningarherferð sem ferðamálaráð Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar standa sameiginlega að í Bandaríkjunum um þessar mundir. Ferðamálastofurnar þrjár, sem heita VisitDenmark, Innovation Norway og VisitSweden hafa tekið höndum saman og kynna löndin þrjú sameiginlega sem áfangastaða ferðamanna með beinum auglýsingum á götum úti og á vefnum. Í tilkynningu segir að frá því í lok september hafa verið birtar auglýsingaherferðir utanhúss, t.d. á strætóskýlum og vegaskiltum í þremur borgum, New York, Boston og Seattle. Í síðustu viku hófst síðan herferð á vefnum með þátttöku margra af þekktustu einstaklingum frá Norðurlöndunum þremur í Bandaríkjunum. Norski hiphop dúettin Madcon, stjörnuleikmaðurinn í ameríska fótboltanum, Morten Anderson frá Danmörku og sænska hokkístjarnan Henrik Lundqvist og margir fleiri segja þar frá uppáhaldsstöðum sínum heima fyrir. "Icelandair er kallað til þessa samstarfs m.a. vegna þekkingar okkar og reynslu á bandarískum ferðamarkaði og vegna þess að enginn býður upp á jafn mikið flug og góðar tengingar milli Bandaríkjanna og þessara þriggja landa og við. Á næsta ári er Icelandair að bjóða áætlunarflug til fjögurra borga í Noregi, Osló, Bergen, Þrándheims og Stavanger, til tveggja borga í Danmörku, þ.e. Billund og Kaupmannahafnar og til Stokkhólms og Gautaborgar í Svíþjóð. Til þessara átta borga erum við að fljúga frá sex borgum í Bandaríkjunum, þ.e. New York, Boston, Seattle, Minneapolis, Orlando og Washington. Þetta er spennandi samstarf og lærdómsríkt fyrir okkur", segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair. "Þessi herferð dregur athygli að Icelandair og þeirri þjónustu sem við bjóðum og styrkir farsælt samstarf okkar við ferðamálaráðin á Norðurlöndum", segir Birkir. "Viðbrögðin hafa verið mjög góð og mikill áhugi á áframhaldandi samstarfi á þessum grunni. Í allri kynningu er tekið fram að á leiðinni yfir Atlantshafið stendur farþegum til boða að hafa viðdvöl á Íslandi án endurgjalds og við gerum ráð fyrir að fjölmargir nýti sér það".
Mest lesið Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira