Sjávarútvegurinn skuldar þrotabúum 300 milljarða 23. mars 2010 15:27
Reikna má út að sjávarútvegurinn, það er útgerð og fiskvinnsla, skuldi nú þrotabúum stóru bankanna þriggja um 300 milljarða kr. af heildarskuldum sínum sem nema hátt í 600 milljörðum kr. í dag.Megnið af mismuninum milli þessara tveggja upphæða eru lán í Nýja Landsbankanum (NBI) og Íslandsbanka auk þess að eitthvað er um skuldir beint við erlenda banka eða minni fjármálafyrirtæki á Íslandi.Ólína Þorvarðardóttir þingmaður Samfylkingarinnar sendi fjármálaráðherra fyrirspurn á Alþingi um skuldastöðu sjávarútvegsins. Í svarinu kemur m.a. fram..." að í stofnefnahagsreikningi Landsbankans (NBI hf.) miðað við 8. október 2008...að um 26% af útlánasafni bankans hafi verið útlán til sjávarútvegsfyrirtækja.Í stofnefnahagsreikningi Íslandsbanka, dags. 15. október 2008... kemur fram að um 16% af útlánum bankans séu lán til sjávarútvegsfyrirtækja. Í endurskoðuðu uppgjöri Nýja Kaupþings banka hf. (nú Arion banka) fyrir árið 2008... kemur ekki fram hve stór hluti útlána bankans eru til sjávarútvegsfyrirtækja."Samkvæmt þessum stofnefnahagsreikningum liggja því 158 milljarðar kr. af lánunum í NBI og 76 milljarðar í Íslandsbanka eða samtals 236 milljarðar kr. Óljóst er með skuldirnar í Arion banka en reikna má með að þær nemi einhverjum tugum milljarða kr.Samkvæmt nýlegum tölum frá Hagstofunni námu heildarskuldir sjávarútvegsins í lok árs 2008 um 564 milljörðum kr. Um 95% af þessum lánum eru gengisbundin að því er kom fram í skýrslu Seðlabankans um fjármálasstöðugleika 2009. Hefur sú tala því hækkað eitthvað á síðasta ári vegna gengisþróunnar en á móti koma afborganir af lánunum.Af þessu er ljóst að um 300 milljarðar kr. af skuldunum liggja í þrotabúum Landsbankans, Glitnis og Kaupþings og eru þar í umsjá skilanefnda þeirra. Þrotabúin eru svo aftur í eigu erlendra kröfuhafa bankanna.
Mest lesið Hækka stýrivexti aftur Viðskipti innlent Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Viðskipti innlent Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ Viðskipti innlent „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Viðskipti innlent Að læra af fimm mistökum Steve Jobs Atvinnulíf Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Viðskipti innlent Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Viðskipti innlent Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Sjá meira