Hamar skoraði ellefu síðustu stigin og vann meistaraefnin í KR Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. október 2010 21:07 Andre Dabney. Mynd/ÓskarÓ
Hamarsliðið átti ótrúlegan endasprett í 87-82 sigri á meistaraefnunum í KR í Hveragerði í kvöld. Þegar fimm mínútur voru eftir var staðan 76-82 fyrir KR en Hamar skoraði 11 síðustu stigin og tryggði sér sinn fyrsta sigur í Iceland Express deildinni í vetur. Leikurinn var jafn og spennandi en Hamar var 22-21 yfir eftir fyrsta leikhluta og fimm stigum yfir í hálfleik, 46-41. KR byrjaði þriðja leikhlutann vel og virtist ætla að landa sigri en heimamenn gáfustu ekki upp og tryggðu sér sigur með frábærum endaspretti. Andre Dabney skoraði 22 stig fyrir Hamar og Svavar Páll Pálsson var með 17 stig og 14 fráköst. Darri Hilmarsson og Ellert arnarson áttu líka báðir góðan leik á móti sínum gömlu félögum i KR, Darri var með 15 stig og Ellert skoraði 16 stig. Ellert skoraði rosalega mikilvæga þriggja stiga körfu á lokasekúndum leiksins sem kom Hamar í 85-82. Brynjar Þór Björnsson skoraði 24 stig fyrir KR og Marcus Walker var með 18 stig. Pavel Ermolinskij náði bara að skora 4 stig fyrir KR í kvöld en hann hitti aðeins úr 1 af 5 skotum og tapaði átta boltum. Hamar-KR 87-82 (22-21, 24-20, 23-29, 18-12) Hamar: Andre Dabney 22/7 fráköst/5 stoðsendingar/5 stolnir, Svavar Páll Pálsson 17/14 fráköst, Ellert Arnarson 16/4 fráköst, Darri Hilmarsson 15/6 fráköst, Kjartan Kárason 7, Ragnar Á. Nathanaelsson 6/10 fráköst, Bjarni Rúnar Lárusson 2, Nerijus Taraskus 2.KR: Brynjar Þór Björnsson 24, Marcus Walker 18, Hreggviður Magnússon 11/7 fráköst, Ólafur Már Ægisson 8, Finnur Atli Magnússon 6/4 fráköst, Jón Orri Kristjánsson 5/7 fráköst, Pavel Ermolinskij 4/8 fráköst/6 stoðsendingar, Fannar Ólafsson 3, Skarphéðinn Freyr Ingason 3.
Dominos-deild karla Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Heimir þurfti að hreinsa tennisbolta af vellinum: „Þetta er ósanngjarnt“ Sport Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Handbolti Fram - Breiðablik | Tvö af fjórum efstu takast á Íslenski boltinn Styrmir nýr formaður hjá Val Íslenski boltinn Komust ekki að samkomulagi og fer frítt frá félaginu Fótbolti Tilfinningaríkur sigur Littler Sport Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Handbolti Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Íslenski boltinn Fleiri fréttir Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Gáfu miðann sinn og misstu af Grindavík verða Íslandsmeistari Sjá meira