Viðskipti innlent

Rúmlega 96 milljarða viðsnúningur á vöruskiptunum

Samkvæmt bráðabirgðatölum voru fyrir allt árið 2009 fluttar út vörur fyrir 497,1 milljarð króna en inn fyrir 409,9 milljarða króna. Afgangur var á vöruskiptunum við útlönd samkvæmt bráðabirgðatölum, sem nam 87,2 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 8,9 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 96,1 milljarði króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.

Þetta kemru fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að samkvæmt bráðabirgðatölum voru í desembermánuði fluttar út vörur fyrir 42,0 milljarða króna og inn fyrir 35,0 milljarða króna. Vöruskiptin í desember voru því samkvæmt bráðabirgðatölum hagstæð um 7,0 milljarða króna. Í desember 2008 voru vöruskiptin hagstæð um 26,4 milljarða króna á sama gengi.

Í bráðabirgðatölum fyrir árið hefur verið leiðrétt fyrir verslun með skip og flugvélar á árinu 2009.

Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir árið 2009 var heildarverðmæti vöruútflutnings 20,6% minna en á sama tíma árið áður á föstu gengi . Iðnaðarvörur voru 48,2% alls útflutnings og er þetta annað árið í röð, frá því að skráning á árlegum útflutningi hófst með reglubundnum hætti árið 1862, sem hlutdeild iðnaðarvara er hærri en sjávarafurða.

Verðmæti iðnaðarvara var 26,5% minna á árinu 2009 en árið áður og vó ál þyngst í útflutningnum. Sjávarafurðir voru 42,0% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 9,2% minna en á sama tíma árið áður. Stærsti liður útfluttra sjávarafurða var fryst fiskflök og dróst útflutningur þeirra saman frá árinu 2008. Sölur á skipum og flugvélum drógust saman á árinu.

Samkvæmt bráðabirgðatölum var verðmæti vöruinnflutnings á árinu 2009 35,4% minna á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Stærstu liðir innflutnings 2009 voru hrá- og rekstrarvara með 30,5% hlutdeild og fjárfestingarvara með 21,6% hlutdeild.

Samdráttur varð í nær öllum liðum innflutnings en af einstökum liðum varð mestur samdráttur, í krónum talið, í innflutningi á hrá- og rekstrarvöru, í innflutningi á fjárfestingavöru og á flutningatækjum, aðallega fólksbílum og flutningatækjum til atvinnurekstrar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×