Samkeppniseftirlitið fái nýjar og víðtækar heimildir 26. mars 2010 14:57 Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að kynna málið fyrir þingflokkum. Mynd/ GVA.
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að vísa frumvarpi efnahags- og viðskiptaráðherra um breytingar á samkeppnislögum til þingflokka stjórnarflokkanna og Alþingis. Verði frumvarpið að lögum fær Samkeppniseftirlitið nýjar og víðtækari heimildir til að grípa inn í starfsemi fyrirtækja eða markaði, m.a. með því að skipta upp markaðsráðandi fyrirtæki ef samkeppni er takmörkuð eða hefur verið raskað.Í tilkynningu segir að samkvæmt frumvarpinu, sem fjallar um breytingar á samkeppnislögum nr. 44/2005, verður Samkeppniseftirlitinu heimilt að beita nauðsynlegum úrræðum til að breyta atferli eða skipulagi fyrirtækja sem með háttsemi eða vegna aðstæðna á markaði koma í veg fyrir, takmarka eða raska samkeppni.Þannig er heimilt að beita þessu ákvæði ef skipulag eða uppbygging fyrirtækis hamlar samkeppni, eða ef athafnir eða athafnaleysi fyrirtækisins gera slíkt hið sama. Beita má ákvæðinu þrátt fyrir að ekki sé brotið gegn bannákvæðum samkeppnislaganna.Ljóst er að fyrirtæki geta verið í slíkri yfirburðastöðu á markaði að tilvist þeirra í óbreyttu formi útiloki eða takmarki samkeppni - þrátt fyrir að ekki hafi átt sér stað samruni eða brot fyrirtækisins á bannreglum samkeppnislaganna. Sú röskun sem getur leitt af framangreindu getur verið jafn alvarleg fyrir neytendur og brot á samkeppnislögunum og verður með þessu frumvarpi innleidd ný úrræði fyrir samkeppnisyfirvöld til að bregðast við.
Mest lesið Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Tekur við sem forstjóri S4S Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Viðskipti innlent Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Viðskipti innlent Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Atvinnulíf Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Sjá meira