KEA hagnaðist um 276 milljónir í fyrra 26. mars 2010 12:36
Samkvæmt óendurskoðuðu bráðabirgðauppgjöri KEA fyrir árið 2009 sem kynnt hefur verið fulltrúaráði félagsins nam hagnaður eftir skatta 276 milljónum króna. Hagnaður fyrir reiknaða skatta á sama tímabili nam 300 milljónum króna.Þetta kemur fram í tilkynningu um uppgjörið. Þar segir að heildareignir félagsins nema rúmlega 4,3 milljörðum króna og er félagið nánast skuldlaust. Eigið fé var rúmir 4,1 milljarðar króna og eiginfjárhlutfall var 96%.Halldór Jóhannsson framkvæmdastjóri segist sáttur við niðurstöðuna. „Markmið okkar með hressilegri niðurfærslu á árinu 2008 var að taka strax til í okkar efnhagsreikningi vegna þeirra hamfara sem hér dundu yfir. Við metum það svo að við þurfum á þessum tímapunkti ekki að færa eignir okkar frekar niður frá því sem við gerðum í árslok 2008," segir Halldór.„Eins og áður erum við varfærin í okkar eignamati. Þó þetta séu bráðabirgðatölur vænti ég ekki breytinga í endanlegu uppgjöri félagsins. Ég er ánægður með það hve vel rekstur margra fyrirtækja sem KEA á eignarhluti í gengur þrátt fyrir krefjandi aðstæður, en eins og Íslendingar þekkja vel er enn mikil óvissa uppi um mjög marga þætti í okkar efnahagslífi.Tekjur félagsins hafa minnkað með lækkandi vaxtastigi þar sem stórt hlutfall eigna félagsins eru peningalegar eignir. Afkoman tekur einnig mið af því að reynt hefur verið að vernda eignir félagsins á kostnað ávöxtunar á meðan mesta óvissan líður hjá. Lausafjárstaða félagsins er mjög góð og efnahagslegur styrkleiki einnig."
Mest lesið Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Viðskipti innlent Tekur við sem forstjóri S4S Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Viðskipti innlent Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Atvinnulíf Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Sjá meira