Viðskipti innlent

Vigdís segir loftfimleika með ólíkindum í Avenskaupum

Vigdís Hauksdóttir þingmaður Framsóknarflokksins segir að það sé með ólíkindum að slíkir loftfimleikar skuli vera stundaðir af Seðlabanka Íslands og lífeyrissjóðunum eins og raunin var með Avenskaupin á sínum tíma.

Þarna er Vigdís að vísa í svar fjármálaráðherra við fyrirspurn sinni á Alþingi um Avenskaupin.

„Í fyrsta langi er Seðlabankinn ekki að fara langt fram úr valdheimildum sínum með því að: "Með kaupunum í maí sl. á öllum útistandandi skuldabréfum félagsins Avens B.V. tók Seðlabankinn, f.h. ríkisjóðs, yfir stjórn félagsins og leysti það upp. Eignir félagsins; íbúðabréf, ríkisbréf og reiðufé, samtals að andvirði 128,5 milljarðar kr. runnu þá til ríkisjóðs," segir Vigdís.

Vigdís spyr síðan hvaða flétta sé í gangi í svarinu við spurningu númer sex en það hljóðar svo: "Til viðbótar íbúðabréfum sem ríkissjóður eignaðist við kaup á skuldabréfum Avens B.V. keypti ríkissjóður af Eignarhaldsfélagi Seðlabankans íbúðabréf að markaðsvirði um 45 milljarða kr., sem fjármagnað var að mestu með reiðufé sem fékkst við kaup á skuldabréfum Avens."

Vigdís segir að síðan séu lífeyrissjóðirnir látinir nota erlendar eigur sínar til að fjármagna gjörninginn og tekur dæmi úr svarinu þar sem segir: "Seðlabankinn, fyrir hönd ríkisjóðs, seldi 30. maí 26 lífeyrissjóðum öll íbúðabréf sem ríkissjóður hafði eignast vegna þessara viðskipta, að virði um 121 milljarð kr., fyrir evrur að jafnvirði um 87,6 milljarða kr. miðað við skráð kaupgengi 28. maí 2010. Bréfin voru seld á fastri 7,2% ávöxtunarkröfu."

„Þetta er rosalegt ," segir Vigdís. „Því sukkið heldur áfram og ávöxtunarkrafa lífeyrissjóðanna er miðuð við að verðbólga verði hér viðvarandi í 3,7% næstu áratugi en hin 3,5% eru ávöxtunarkrafa umfram verðbólguna og þannig fást 7,2%"




Tengdar fréttir

Reiðufé nam 43,5 milljörðum í Avenskaupunum

Af þeim eignum sem Seðlabankinn keypti af Avens B.V. félagi í eigu Landsbankans í Lúxemborg nam reiðufé alls 43,5 milljörðum kr. og var hlutfall þess tæplega 34%.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×