Viðskipti innlent

Smálán: Bannað að lána tekjulágum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Árni Páll Árnason er efnahags- og viðskiptaráðherra. Mynd/ GVA.
Árni Páll Árnason er efnahags- og viðskiptaráðherra. Mynd/ GVA.
Starfsemi smálánafyrirtækja verður starfsleyfisskyld. Starfandi fyrirtæki fá þriggja mánaða frest til þess að afla sér starfsleyfis, samkvæmt nýju lagafrumvarpi sem Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, hefur boðað um starfsemi slíkra fyrirtækja.

Smálánafyrirtæki verða gjaldskyld sem önnur starfsleyfisskyld fjármálafyrirtæki og ber þannig til dæmis að greiða til rekstrar Fjármálaeftirlitsins og Umboðsmanns skuldara.

Í fréttatilkynningu frá efnahags- og viðskiptaráðuneytinu segir að með frumvarpinu sé leitast við að setja lagaumgjörð um starfsemi smálánafyrirtækja sem sé sambærileg þeirri sem gildi um fjármálafyrirtæki og séu helstu ákvæði eftirfarandi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×